Þetta er langdregin grein og ég nennti ekki að stytta hana, þannig ef þið nennið ekki að lesa þetta, sleppið því.

Eitt smávæginleg atvik sem mig langaði til að sletta úr mínum litla haus … ekki beint skemmtilegt atvik, en þó finnst mér ástæða fyrir að koma á framfæri. (Þessi grein er náskylt því umræðuefni sem hann góði clanfélagi minn Gústi (izelord) vakti upp hér með grein alls ekki fyrir löngu, og því þetta hefur komið upp áður, ákvað ég að henda þessu bara á korkana).

Miðvikudaginn 29. janúar síðastliðinn fór ég á kaffihús með vinkonu minni og eftir ágætis kvöld langaði mig til að fara heim og slappa af með sígó og kók og spila smá CS, allt í lagi með það. Ég kom heim, henti af mér jakkanum, náði mér í kalt kók og settist fyrir framan tölvuna og teygði mig í tóbak. Ágætlega hress fer ég að skoða ircið og spjalla við fólk þar, eins og maður vanalega gerir.

Svo fer ég að athuga hvort eitthvað líf sé í mínu clani. En þar eru flestir farnir að sofa, ekkert að því. Þannig ég smala saman liði í smá pickup og við förum að leita að mótherjum. Eftir nokkurra mínútna leit, þá finnum við loksins mótherja og þegar inná server er komið, þá kemur í ljós að þetta er annað pickup, enda er frekar liðið á kvöldið.

Eftir tilheyrandi teamkill og plan og svoleiðis, þetta vanalega bara, hefjum við leikinn. Eftir ca 4-5 round, byrjar einn í hinu liðinu að segja í say: “Djöfull ertu lélegur geiri, farðu bara að spila Sims eða eitthvað”. Ég læt eins og ég hafi ekki séð þessa setningu. Svo 4 roundum seinna heyrist frá öðrum aðila í þessu “pickup” .. :“ Vá, ég vissi að þú værir lélegur en ekki sona lélegur, viltu ekki bara fara og skjóta þig og taka mömmu þína með?” Ég spurði hann kurteisislega hvort það vantaði nokkuð siðferðiskennd í hann, og hann neitaði því. Svo byrjaði annar liðsfélagi hans (semsagt 3. aðili) að koma með álíka leiðinleg komment, þannig ég sagði við þá að spila bara leikinn án þessara leiðinda ellegar ég færi bara, ásamt liðsfélögum mínum, sem höfðu fengið sinn smekk af svívirðingum. En já, svo þegar seinni hluti leiksins byrjar, þá kemur þetta æðislega komment: “Hey Geiri, átt þú ekki barn? Er það ekki jafn forljótt og ógeðslegt og þú? ” (Og já, ég á barn). Þá fékk ég nóg og fór útaf server, orðinn það pirraður og særður að ég slökkti á tölvunni (sem ég geri aldrei) og plantaði mér fyrir framan sjónvarpið og að lokum sofnaði fyrir framan það.

Undanfarið hefur maður tekið mikið eftir sona leiðindaskítkasti, kannski ekki jafn brutal og þetta, en samt sem áður…Ég hélt alltaf að tölvuleikur kræfist ekki mikillar greindar og samskiptahæfileika, en það er greinilega að sumir hafa einfaldlega ekki þroska í þetta allt saman. Mikið hefur verið talað um aldur spilara hérna, en þessir yngstu eru alls ekkert þeir verstu, þeir koma yfirleitt fram við mann eins og þeir vilja að það sé komið fram við sig, með undantekningum að sjálfsögðu. En svona svívirðingar ganga einfaldlega of langt.

En… þar sem ég vil ekki koma af stað frekari leiðindum vegna þessa, þá ætla ég ekki að nefna viðkomandi spilara með nafni eða nicki, svo vinsamlegast ekki biðja mig um það AAIGHT ?

GG and gúdnæt :D<br><br>Geiri Beib :D
CS: Synergy ~ |nZane