http://www.hugi.is/hl/korkar.phpsMonitor=viewpost&iPostID=920108&iBoardID=332

hér má sjá hann Shelob segja frá því hvernig, hvað leiddi og af hverju Muerte hætti sem klan hér á fróni.

Margir hafa eflaust pælt, af hverju ætti svona efnilegt klan að skyndilega gefa upp laupana og skiptast upp í smærri einingar og ganga í önnur klön. Shelob reynir að svara þessum spurningum, en einzog glöggir lesendur hafa tekið eftir þá eru ýmsir gallar í frásögn hans.

Allt lék í lyndi, þar til að Spieluhr og margir aðrir ákváðu að hætta í klaninu, og fóru margir yfir til [SaH] sem liðhlaupar ( ;)
-shelob

hér sést það mjög greinilega að Shelob vill alls ekki segja frá ástæðunni fyrir því að Spieluhr (eitt stærsta nafn Muertes) hættir skyndilega.

Svo að ég, [-=HB=-]Fearz hef ákveðið að komast í botn á málinu.

Eftir mikill rannsóknarstörf, viðtöl við foreldra, I.P-hlerun sem og ýmsar aðrar leiðir komst ég að því af hverju Spieluhr hætti. Og málið varð strax MIKLU skuggalegra en ég bjóst við í fyrstu.

Svo virtist sem þetta klan, var alveg frá byrjun dæmt til þess að deyja. Og þaðan kom nafnið. Árið 2000 þegar Necro voru á hátindi ferils sinns þá ákvað Pimp Clinton að hugsa soldið lengra fram í tíman, út af háum meðal-aldri í Necro var nátturulega ekki hægt að búast við því að Necro yrði besta klanið lengi (menn deyja úr elli og sollis) svo að hann ákvað að hrinda af stað verkefni sem fól í sér “Framleiðslu” á DoD-spilurum.

Framleiðsla fór strax í gang, og áttu þeir svo mikið af klónuðum spilurum að þeir í Necro neyddust til að búa til nýtt klan fyrir þá drengi. Og þá varð til Jugend!!! …

Jugend er greinilega “inspired” frá Nasistahreyfingunm sem sýnir það að Pimp Clinton var greinilega búinn að missa vitið. Hann stefndi á heimsyfirráð. Þess vegna byrjaði hann reglubundið að sprauta alla Jugend menn með skringilegu efni sem hækkaði “Nördunarstigið” í þeim og fékk þá til að hafna öllu sem tengist jarðneskjulegu lífi. Og þeir byrjuðu að eyða meiri og meiri tíma í tölvunni sinni.

Versta case-ið í þessu er nátturulega Necro-J-Winston. Sem er ennþá varanlega bæklaður og er tæplega til fyrir utan tölvuna sína. En það er önnur saga … :D

Ekki voru allir sáttir í Necro sáttir við þessa geðveiklun Pimp Clintons og reyndu að fá hann til að hætta þessu. En þar sem Pimp Clinton var einn af valdamestu mönnum í þessu gífurlega klanið voru snöggt uppreisnarmennirnir reknir á brott þ.e Goodfella, bbf3 og Frank Castle …

Á sömu stundu byrjaði Jugend maður nokkur InSane að nafni að taka eftir því hvað var á seyði og líkaði alls ekki við hvað var í gangi. Svo að hann reyndi að tala félaga sína til og fá þá til að yfirgefa þetta Dópnotandi ofurnördapakk, en allt kom fyrir ekkert og Pimp Clinton lét hrekja hann í burtu… en InSekt var einn af örfáum sem náði að hætta á þessu dópi.

Hinir voru OF háðir.

Um þetta leyti voru Jugend menn orðnir sirka 15-20 manns. Og fyrst þá fór Pimp að sjá eitt vandamál.

Þeir í Necro voru einfaldlega miklu betri en þessir dóp-notandi tölvunördar svo að hann hætti við verkefnið. En Baaz, einzog nice og hann er. Sá að það var alls ekki nógu sniðugt að einfaldlega sleppa taumhaldinu á þessum geðsjúklingum því að “riot”-in myndu eflaust murka út allt líf á jörðinni. Svo að hann breytti einfaldlega dópinu … og skipti 0.01% af efninu með arsenikki. Á hverjum degi stækkaði hlutfall arseniks í efninu um 0.01% svo að á 10þús dögum myndi þetta vera orðið 100% arsenik sem myndi drepa þá.


Hence the name … Muerte!!!! því það voru víst örlög þessara saklausa klans. Dauði.

Það var ekki fyrr en seint á árinu 2002 sem Spieluhr varð var við það að nördismins hans var að minnka. Því að hann actually talaði við stelpu. Þótti honum þetta mjög skrýtið og fór að rannsaka þessar pillur sem hann fékk alltaf frá Baaz, og þar sem Spieluhr var nú einu sinni orðinn ofur-nördi var hann með heima hjá sér tæki og tól til að rannsaka þetta og komst að sannindunum.

Spieluhr lét sér hvergi bregða og ætlaði að nýta sér þetta… hann fór á fund með Baaz og þar voru samþykktar launagreiðslur á milli þeirra svo að Spieluhr myndi ekki kjafta frá.

Smátt og smátt varð Spieluhr gráðugri og gráðugri, og heimtaði ávallt meiri pening. Tók þá Baaz til sinna ráða og náði í thuggana sína og lét þá berja líftóruna (næstum því) úr Spieluhr… lofaði hann þá að segja engum frá þessum pillum. En Spieluhr gat ekki horft uppá vini sína drepast smátt og smátt og ákvað því að stinga af… og ganga í lið með SAH.

Við þetta reiðarslag urðu allir í Muerte soldið dofnir, og vissu ekkert hvað þeir áttu að gera… sá besti í DoD var farinn. Sá sem var mesti tölvunördinn var einnig farinn (Winston/Cyberian náði að totta sér leið inn í gRiD) og fóru lang-flestir að gráta.

Hætti Baaz þá að nenna að hugsa um þá og sleppti öllu þessu pillu-veseni.

Og þar með hætti Muerte.

Takk fyrir :D

P.S Baaz .. skamm skamm!!!
P.P.S Pimp Clinton skamm skamm!!!
P.P.P.S eh … whutevah

<br><br><a href="http://fearz.blogspot.com">thugblog dauðans!</a