1. Deild

Zero5 - Synergy
——————–

Ég held nú að “Online Ofurhetjurnar” í Syn vinni þetta nokkuð auðveldlega. Ég hef ekkert séð til 0.5 nýlega en ég held að þeir hafi ekki styrkleikann til að velta liðinu sem næstum því vann Legion.

Syn 16-8 z5

DON.CS - Tval
——————–

Bæði liðin búin að tapa sínum fyrsta leik.. Ætli TVAL nái að vinna? Nei það held ég ekki, því miður. Glæpakóngarnir í DON taka þetta létt með lokaðri AWP vörn.

DON 19-5 TVAL

UNited - Legion
——————–

Jæja.. Legion virðast vera komnir á fullt skrið eftir síðasta leik. Van Damme gaurarnir taka nokkur vel valin spörk í Sameiningarfélagið sem geta þó ef Theion og félagar spila.

Legion 20-4 UN

Ice.CS - nsp
——————–

Orðið er á götunni að NSP mæti í lansetrið til að spila þennan leik. Ætli allt Ice liðið verði í lansetrinu líka? Vanilla Ice eru ekkert al slæmir í lestarborðinu en miðað við hvernig liðið hjá Nýlegu Sveita Peyjunum verður í kvöld þá held ég að þeir gætu unnið. Annars komu Klakastrákarnir vel á óvart í CAL í gær og býst ég við því að þeir eru enn í sigurvímu eftir að hafa unnið sennilega 2 sterkustu liðin í Atlantic deildinni.

Ice.CS 13-11 NSP

LSD - diG
——————–

Ég held að Sýruhausarnir gefist upp á að reyna að gefa Dúkkunum blóm og reyni að gefa þeim bolta í staðinn. LSD eru ekkert rosalega slæmir í Train en diG eru með þá spilarar sem komu með 1-5 vörnina fyrir landsliðið á sínum tíma. Einnig eru Dúkkurnar fullar af reiði eftir að hafa naumlega tapað fyrir Öndunum í síðustu umferð þannig að ég býst við að þær verði vel tilbúnar til að sýna hvað í þeim býr.

diG 19-5 LSD

GEGT1337 - MurK.cs
——————–

Þetta verður BOMBA, B-O-B-A!!!. Murkararnir vinna þetta án þess að leka einum einasta svitadropa.

MurK.cs 21-3 GEGT1337

[VON] - Drake
——————–

Ég spái nú ekki fyrir mínu liði :O en ég held að nærbuxnadvergarnir sýni sig aftur.

GGRN - Org
——————–

Ég veit það ekki.. ég held að GGRN menn mæti með Skógardýrið Húgó og sleppi honum lausum með AWP í hendi. Train er mjög AWP vænt borð og ég held að Org eigi ekki eftir að geta unnið.

GGRN 15-9 Org

2. Deild

Ég nenni ekki að spá útaf ég þekki svo lítið til liðanna. <br><br><b>Drake | Shock</