Bara núna áðan 18.jan c.a. 22:15 tókum við í sweet scrimmage við klanið “Cruelty” í dust2. Byrjar svolítið seint þarsem einn maðurinn í sweet mætti ekki og við urðum að redda öðrum sem var ekki skráður.

Ok, allt byrjar vel, við vinnum fyrsta round án þess að einn deyji en þá restarta þeir þessu. Við verðum náttúrulega frekar pirraðir og segjum að það þýði ekki að segja “lo3”(live on 3) og svo LIVE! LIVE! LIVE! með rcon og segja svo eftir roundið að þetta hafi ekki verið live.

Við ákveðum að leyfa þeim að restarta þessu og tökum þá aftur nema þá deyr einn í liðinnu. :/

Eftir það gengur allt í sögu og við náum oft góðum skotum og plötum þá oft með feik rushum og alles.

Eftir leikinn vinnum við þá með 11-1 og þá byrja þeir að ásaka okkur um hax og fara að spurja hversu lengi ÉG væri búinn að spila cs og segja að það væri ekki séns að við myndum vinna þá svona. Svo voru náttúrulega þessu daglegu stfu og allt það bull.

Ok, við verðum pirraðarri og svo í seinni leiknum hætta allir nema einn í liðinnu þeirra og koma svo allir nema 1, aftur eftir smá stund* og einn úr okkar klani varð að fara svo síðarra roundið var 4on4.

Eftir þetta byrja þeir að gera stórkostlega hluti og vinna okkur 10-2. Þessi helmingur var frekar fáranlegur þarsem þeir voru að standa sig miklu betur en áður og t.d. það var ég tekinn 1shot headshot gegnum hurðinna og einn hjá þeim drap alla í okkar liði með awp í closerange bardaga á bombsite B (síðasti leikurinn).

Þegar scrimmage-ið var svo loks búið byrjuðu þeir að segja að við vorum að haxa og við að þeir voru að haxa. En svo kemur allt í einu úr einum (poison) “EG SAT HIG EG ER HAXARI” (Screenshot) Ég skil ekki alveg íslenskuna hans en er hann að segja að þeir hafi haxað? Og voru þeir þá að haxa því þeir héldu að við höxum?

P.S. Við unnum ^^ - No fleimz - Tek ekki ábyrgð á sjónmengunum (stafsetning!) l8