Nú ætla ég að segja ykkur sögu.
Ég Gimpi hinn mikli var að spila á blast núna rétt áðan, Köln var í gangi og allir í gúddí fíling nema hvað axis er að tapa þegar við (ég var í axis) töpum grípur mig óstjórnleg löngun til að drepa liðsfélaga mína þannig að ég vel mér bara mg42 og plaffa niður heilan hellig af þeim, svoleidis athæfi er að sjálfsögðu ekki mjög vinsælt en þegar ég var búinn að þessu fannst mér ég vera endurnærður og hressari en nokkru sinni fyrr.
Þannig að ég mæli eindregið með því að fólk geri sér ferð á server einu sinni í mánudi með það að leidarljósi að myrða liðsfélaga sína. Það er algjör nauðsyn að ná spennunni út með að drepa fólk algerlega varnarlaust og óviðbúið. Manni líður eins og endurfæddum á eftir
(Mæli samt ekki með því að gera þetta á blast fólk er eitthvað svo tense þarna, ekkert að því annars að fara á þýskan server og bauna niður nokkra þýskara)<br><br>og svo legg ég til að við leggjum Karþagó í rúst

Gimpi