#dod.is Já, leiðindi þessa dagana.

Þessi rás var stofnuð af akz, Berserk, og Exotech - ég var með þeim fyrstu á þessa rás og er lengi búinn að vera Op á þessari rás.

Skömmu síðar var akz á förum og ég sýndi virðingu til hans meðan hann var á rásinni, og til aðra Já.

akz var með bott á rásinni að nafni VerioLink - Þegar akz þurfti að fara (dunno why) - Um ár síðan, jafnvel meir þurfti hann að láta einhvern taka við og sjá um opin á #dod.is - Hann treysti mér til þess og sagði að honum litist best á mig sem stjórnandi þess. Ég tók við og lærði fljótt hvernig átti að stjórna bot og bæta við “opusers” á bottann. Það gekk allt vel.. 2-3 mán. síðan komu nýjir bottar inn á #dod.is - Því vesen stóð á VerioLink (Man ekki hvað var að) - ég var settur á bot master á þá botta líka, ég sé almennt um að setja fólk á op á dod.is - ásamt 2 öðrum á dod.is , sem eru ekki alveg að gera eins mikið og ég.

Mætti segja að ég sæi alveg um þetta. En jæja, mikil leiðindi eru búin að koma upp þessa dagana, allir ásaka mig um allt.. sem er alls ekki satt, ég hef gert misstök. Ég veit það, en ekki alveg svo mikið að fólk þyrfti að kvarta hér á korkunum og jafnvel gera nýja “DoD” rás, sem búið er að gera. Núna í gær var topic á #Abeo.is breytt - Allir að parta #dod.is og kasta tómötum í Cyberian (mig) - og opna nýja rás að nafni #[DoD] Það gengur vel sýnist mér. Ef fólk vilja koma að ræða við mig um málin endilega gera það. Ég er oftast online á irc.

Með op abuse og fleira.. hmm, já, kain White Devil og einn annar stóðu á bakvið þetta topic. Ég varð sár að sjá þetta og henti 4-5 Abeo gaurum útaf dod.is - 2-3 af þeim voru búnir að bögga mig töluvert gegnum tímann, og ekki hef ég getað fyrirgefið þeim.

InSekt .. ég sá póstinn þinn núna áðan og þetta er rugl hjá þér, bull og vitleysa, og [Necro]Heinkel ef þú ert að lesa þetta þá ætla ég ekki að drulla mér af dod.is útaf þér og 5-10 öðrum vinum þínum sem eru sammála þér. Komið á irc og ræðið við mig um málin, endilega.

Þeir bottar sem eru nú á #dod.is, sé ég um, og já ásamt 2 öðrum..
Og ætti ég að láta Arafat í GZ taka við þeim? Afhverju ? .. Efast um að hann kunni meir á þetta en ég.. bottanetið þ.e.

Ræðið við mig um málin á irc ef ykkur langar. Ég hef abuse-að með oppið mitt ég veit það, en það hefur ekki gert oft, mjög sjaldan, enda er ég búinn að laga það.


Kv,
~ Cyberian