Hvað er með þessi lið sem þola ekki að hltv proxy sé á server sem þeir eru að spila á? Eru þeir svona hræddir við að einhver sé að sjá þegar þeir eru ownaðir? Margir vilja meina að þetta sé ghostari sem kallar sig bara HLTV proxy en það er einfalt að gera bara status í console og þá sést greinilega hvort um hltv eða vitleysing ræðir.
Annað mál eru þeir sem koma inn á server í miðju skrimmi með nick eins og Gummi_spec_ekkikick_plz! Þetta eru pirrandi gaurar! Setjiði heldur upp hltv server á vélinni ykkar og speccið leikinn þannig.Þá vita bæði liðin að hér er ekki um einhvern lame ghoster að ræða og allir eru happy.
Og ef þið kunnið ekki á HLVT, læriði það þá frekar en að vera að bögga aðra og gera menn fúla í skrimmum með vankunnáttu ykkar.
Takk fyrir.<br><br>“Only the good die young, and I seem to be getting pretty old”
———————————————————————–
[.IFF.]Saxon
“Only the good die young, and I seem to be getting pretty old”