Vegna korks sem ég las og leyfi mér að pasta hér fyrir neðan, “Til GGRN:
Þessi póstur minn átti ekki að vera neitt beint fleim á GGRN, enda eigiði það ekki skilið í ljósi þeirra svara sem hafa komið eftir póstinn minn. Þ.e. að hann laggi stundum og þið eigið í vandræðum með hann o.s.frv. Þetta var allt sem ég þurfti að vita, nú skil ég af hverju þið notið skrim serverana.
Ef GGRN menn sáu eitthvað fleim úr póstinum biðst ég afsökunar á því, einnig á skotinu mínu á Rooster um daginn, sorry about that mate var á túr eða eitthvað.”

Eins og ég hef áður sagt þá þekki ég flesta ykkar ekkert og ekki heldur þig, en hef fengið á margan hátt að finna fyrir því að vera í GGRN, sem mér þykir miður.

En að sjá þetta svar og að á bakvið þetta ógnvænlega nick skildi leynast hinn hugrakasti og besti drengur þá hef ég ákveðið eftirfarandi.

Ég hringdi áðan og pantaði vél sem á að geta hostað 2 MJÖG góða skrimm servera og munu verða settir upp núna á næstunni (á bara eftir að finna útur hýsingu með Zlave), þetta geri ég úr eigin vasa fyrir okkar litla og oft á tíðum ósanngjarna og óprúða samfélag.

Með þessu verða komnir 2 serverar í viðbót við þá sem fyrir eru, og einnig í þeirri von að geta komið hér og lesið um mitt uppáhalds áhugamál án þess að lesa bara um væl og nöldur um það hversu mikið vanti skrimm servera.

Þessir serverar munu vera opnir fyrir öll klön en munu hlýta sömu reglum og aðrir ( ekkert duals og ekkert rcon abuse ), einnig mun ekki vera vel séð að altnick clön séu þarna inni að gera lítið úr óreyndari clönum sem eru að reyna sitt besta og æfa það sem þeir þó geta.

Munið að þótt serverarnir séu komnir upp þá er mér Það í vald gefið að taka þá hvenær sem mig langar ef eftir þessu er eigi farið, því ég er að leggja þetta úr mínum vasa í þó nokkuð öfluga vél.

Vonandi að þú getir séð að með þessu svari mínu er ég eigi að sleikja einn né neinn upp heldur aðeins að gera einhvað fyrir okkur alla, og þá mátt þú einnig eiga heiðurinn að því að ég tók þessa ákvörðun þegar ég sá svar þitt, því í það þarf þó hugreki hið mesta að geta séð á bak orða sinna :).

Serverarnir munu bera nöfnin Skrim.is 1 og Skrim.is 2 til að aðgreina þá frá öðrum skrim nafna serverum.

Verði ykkur að góðu kæru stríðsbræður og vonandi að menn njóti vel, og PLZ sleppið fleimi á þennan kork eða bull svörum eins og fyrstur.

[GGRN]HUGO***

ps. REMEMBER VAX ON VAX OFF