Loksins er Simnet komið með lausn [vonandi] við háu pingi internettenginga þeirra. Þeir hafa sent út e-mail hvað þetta varðar.
<i>
Ágæti viðskiptavinur

Þessi tölvupóstur er sendur viðskiptavinum Símans Internet sem eru með
Internetþjónustu um ADSL-tengingar.

Eins og þú getur hafa tekið eftir síðustu vikur, hefur svartími á
Internetþjónustu Símans Internet um ADSL-tengingar, ekki ætíð uppfyllt
kröfur til rauntímaþátttöku í netleikjum. Við biðjumst velvirðingar á því.
Við gerum okkur grein fyrir alvarleika málsins og þökkum þolinmæði
viðskiptavina okkar. Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að bæta
gæði tenginganna og með það fyrir augum viljum við bjóða þér eftirfarandi :

Síminn Internet býður þér að taka þátt í tæknilegri tilraun til lausnar á
þessu vandamáli. Keyrsla lausnar þessarar mun standa í þrjá mánuði, eða til
1. mars og þátttaka í henni án viðbótarkostnaðar þessa þrjá mánuði.

Lausnin felst í því að ADSL tenging þín yrði endurskilgreind og þar með fast
tengd við Símann Internet. Ef ADSL tenging þín er nú notuð til að tengjast
fleiri þjónustuaðilum en Símanum Internet, t.d. fyrirtæki vegna fjarvinnu,
er því ekki mælt með þessari gerð tenginga.

Til að óska eftir þátttöku getur þú svarað tölvupósti þessum, með þeim
upplýsingum sem beðið er um hér að neðan. Eftir þessa þrjá mánuði verður
tengingin færð aftur til fyrri skilgreiningar, nema þessi gerð tenginga
verði boðin áfram og þú kjósir að halda henni.

Stefnt er að því að tengja fyrstu þátttakendur föstudaginn 29. nóvember og
það mun taka allt að tveimur vikum að tengja alla þátttakendur.
</i>

Persónulega finnst mér þetta frábært hjá þeim og sýnir þetta að þeir eru internetþjónusta sem þjónar viðskiptavinum sínum vel. Svo er bara að prófa að skipta yfir og sjá hvað gerist.<br><br><hr noshade size=“1” width=“150” align=“left”><img src=" http://www.simnet.is/bjornbr/signature.gif"