Núna í kvöld sat ég í mestu makindum og glápti á only rás okkar Exile liða þar sem allt var jafn steindautt og í kirkjugarði.

En skyndilega verður allt vitlaust. Liðsfélagar mínir koma æstir og rauðir og hella þetta líka þvílíkum blótsyrðum yfir Drake.

Ég spyr greyin hvað ami að þeim og fæ þau svör að Drake-liðar hafi tekið sig til, breytt rcon-passwordi á skrim6 og sparkað mínum mönnum útaf leikjaþjóninum.

Drengirnir fullyrða að þeir hafi komið á undan á serverinn. Síðan á liðsmaður Evil að hafa komið inn en skotist aftur til að sækja félaga sína í skrimmið.

En á meðan hann var að ná í félaga sína fylltist serverinn af Drake og Don gaurum og var okkar mönnum tilkynnt að þeir væru ekki með skrim og yrðu þar af leiðandi að hypja sig af servernum.

Eftir það virðast Drake eða Don liðar (Drake fullyrða mínir menn) hafa sparkað liðsmönnum mínum af servernum.

Ég tek fram: Ég var ekki vitni að þessu og er að skrifa að beiðni félaga minna þar sem ég hef hingað til verið málsvari klansins.

Ef að Drake og/eða Don liðar hafa eitthvað við þetta að athuga þá endilega svariði með öðru en stfu n00b. Ef þetta er vitleysa þá biðst ég innilega afsökunar.

Kv. Exile | Moonchild
Pálmar