Svona vantar okkur hingað á þessa hl korka okkar:
Tekið af hugi.is/quake
Klukkan 10 ur sum, já ég verð að fara að sofa :/

cfg (72 Lestrar)
DarkSkin Þann: 21. nóv, 09:42




hey getur einhver hérna bent mér á síðu með q3cfg






Re: cfg (3 Lestrar)
alias Þann: 21. nóv, 16:06




www.cyberfight.org

www.esreality.com

______________

*** ^e|thrstn
*** [GGRN]thrstn
*** www.ggrn.org

……





Re: cfg (1 Lestrar)
DarkSkin Þann: 22. nóv, 11:24




takk.

—————
Er þetta ekki fallegt?
Ef slóðin væri sú að Darkskin mundi koma á cs-korkanna þá mundi margt af eftirtöldu gerast.

1) Að minnsta kosti einn myndi koma með: “Fyrstur!” (tölur hafa sýnt að í meira en 50% tilvika er sá einstaklingur ekki eldri en 14 ára) og einhverja huge undirskrift sem hefur þann eina tilgang að eyða skrolldisknum á músinni minni.
2) Sirka 2-3 myndu koma með “noob/n00b/nýgræðingur eða núb” og svo einhverja frekar leiðinlega mynd af einhverjum umdeildum aðila í cs-samfélaginnu.
3) Það myndu 6 manns hneykslast yfir mönnunnum sem sögðu n00b við Darkskin en afturámóti gleyma að benda honum á hvar hann gæti nálgast configa.
4) 3-5 Mundu hrópa “hjálpar korkur” á greyið hann Darkskin.
Reyndar er það ansi skiljanlegt að Darkskin póstaði á cs- en ekki hjálpar korkanna. Því erfitt er að koma auga á þá, t.d fann undirritaður ekki hjálpar korkanna fyrr en svona hálfuári síðar en hann sá orðið fyrst.
5) Alveg hellingur af fólki mundi pósta inn ennþá tilgangslausara bulli með enn stærri undirskriftir. Þetta mundi koma af stað flóði, einhver tekur sig til og kímnast doldið í manninnum með stóru undirskriftinna. Þá koma margir manninnum með stóru undirskriftinna til hjálpar (fyrst hann er með op á #counter-strike.is) og beina leiðindum í garð “kímnarans”.
6) Svo mundi [GGRN]thrstn benda honum á hvar configa væri að finna.
Til að enda þetta þá mundi Darkskin alveg örugglega ekki segja “takk” fyrir. Ástæðan fyrir því felst í möguleikum 1-5.

Sem sagt óþjált og leiðinlegt svona eins og þessi korkur minn.

Svo er bara um að gera núna þegar við höfum fyrirmyndinna að gera eitthvað í þessu.
Stoppum í sameiningu fúkyrðaflaum og önnur leiðindi á cs-korkanna.

P.s Mér verður ekki skemmt ef .. sá fyrsti sem svarar korknum.. pósti “noob” eða “fyrstur!”. (Reyndar á ég von á því fyrst ég er ekki með op hvorki á #cs.is né #counter-strike.is.)
En aftur á móti ef enginn póstar svoleiðis leiðindum, þá mun enginn svara honum :/ Sem leiðir af að það munu bara koma ábendingar um hvar mér gæti heppnast stafsetningin betur. Of mörg Enn og y/i etc.


<br><br>Palli <p> <img SRC="http://www.plauder-smilies.de/party/ylsuper.gif"
supertroopers2000 :: Palli