Fears uppgvötar að staðurinn hans er alls ekki nógu góður og leggur þar með af stað. Það fyrsta sem hann sér er hann er kominn út úr skjóli sínu er einn af sérsveitarmönnum gRiD sveitarinnar snúa baki í hann. Fears stendur alveg kjur núna, vill alls ekki láta heyra í sér. Færir riffilinn upp í skotstöðu, er með hann í skotsigti, er að taka í gikkin. Og þá heyrist kallað

“FEARS!!!”,

Fears lítur til hægri og sér Pvt.Fannar, og þá segir hann aftur “Fyrir aftan þig”. Fears lítur fyrir aftan sig og sér þá annan gRiD mann með hníf í hendinni alltof nálægt sér. gRiD-arrin stekkur áfram að Fears og lenda þeir báðir í jörðinni. Fannar ætlar að koma til aðstoðar en seinni gRiD maðurinn er ekki langa að skjóta hann niður úr stað sínum.

Tveir gRiD menn og Fears eru nú lokaðir af, enginn möguleiki á aðstoð fyrir Fears, útlitið er svart.

Á meðan þeysist MaximumB0ner í gegnum rústirnar, með riffilinn í annari og hníf í hinni leitar eftir óvinum. Hleypur upp hálfgerðan stiga gerðan úr rústuðum veggjum sem hafa hrunið niður, auk annars rusls. Smátt og smátt kemst hann eins hátt og mögulegt er og þar glittir í leyniskyttu þeirra. MaximumB0ner hugsar sér gott til glóðarinnar, og hleypur að honum, öskrandi “DEYÐU” Sniperinn, reynir að standa upp en þá þýtur fyrsta skotið úr riffli Maximum´s. Sniperinn hrynur aftur niður, en hann lifir samt. Og þá byrjar Maximum að berja skyttuna í höfuðið með rifflinum sínum, brak heyrist, höfuðkúpan brotinn, Splat heyrist, heilinn tættur svo loks dauðahryglur, leyniskytta Dáinn.

Rayden og Wolferine koma út úr húsinu um þetta leyti, og þar sem þeir komu hefðu þeir verið afskaplega auðveld skotmörk fyrir leyniskyttuna sem hann Maximum tók út rétt í þessu. Rayden byrjar að setja upp vélbyssuhreiðrið meðan hann Wolferine passar að enginn óvelkominn trufli þá.

Á meðan sér Maximum yfir alla borgina þar sem hann er og sér hvar Fears er haldið niðri af einum gRidarra og annar miðar byssu sinni á andlitið á honum tilbúinn til að hleypa af. Maximum veit að hann hefur sama sem engan tíma til að miða, hleypur af og vonast til að skjóta ekki Fears.

Bang!

Skotið þýtur af stað, annað skot þýtur af stað. gRiD maðurinn sem var ekki með byssu uppi fellur niður, með andlitið á sér í bitum. Næsta skot fór beint í bringuna á Wolferine og áður en hann hrynur niður er kastað handsprengju í hreiðrið þeirra. Gunsalot snýr sér við og sér hvaðan þessir menn koma, 4 gRiD menn koma þarna í beinu áhlaupi. Hann snýr sér við og byrjar að skjóta á fullu úr Thompson Rifflinum sínum á þá. Rayden hleypur af stað, og vonast til að komast nógu langt áður en sprengjan springur, hann náði því ekki. BOOM!! Vélbyssuhreiðrið verður að engu, Wolferine verður að engu, Rayden hendist lengst í burtu og lendir ekki langt frá Gunsalot og félugum.

Maximum lítur aftur til Fears og reynir að finna út hvern hann drap. Hann sér alla þrjá liggja í blóði sínum, einn með skotsár í andlitinu, næsta skorinn í sundur með hníf, og svo Fears sjálfur með stórt stungusár í maganum. En hann er ekki dauður, ennþá einhver glóð í honum. Þar sem Maximum sér hann teygja sig í vasan sinn og draga upp Marlboro pakkan víðfræga.

Hann leggur sígarettunna upp við varir sínar, en áður en hann nær að kveikja í henni… slokknar í glóðinni.
<br><br><a href="http://fearz.blogspot.com“ target=”_blank">
Thug Blog dauðanz maphakkaz</a