Ég legg hér með til að öll klön og nokkur liðskipan af nokkru tagi verði lagt niður í Counter-strike og ef að einhverjir fara að draga sig saman verði þeir einstaklingar BANNAÐIR eins og um svindl sé að ræða.

Ef þetta yrði framkvæmt mætti komast hjá öllu þessu helv bulli og súrheitum sem heitir að hórast (án þess að ég sé að segja “clanhórast” eins og frægt er orðið) á milli clana eða að clön leggist niður.

Það eru ekki nema svona 400 reglulegir cs spilarar frá degi til dags. Það væri hægt að hafa þessa einstaklinga í bara 1 clani!

Ég held að annaðhvort þetta fyrirkomulag myndi henta litlu samfélagi eins og á Íslandi. Það eru nú allir hér bræður og frændur og við ættum að standa saman. Ekki berjast á móti hvor öðrum og stinga hvorn annan í bakið með að flakka á milli liða svona eins og við séum á túr.

Fyrrverandi sh0cker [Cadia]cute