Fyrir hönd Ground Zero vil ég óska öllum hlutaðeigandi til hamingju með að hafa loks slíðrað sverðin í þeim deilumálum sem undanfarið hafa verið hér í gangi.

Ground Zero co. hefur algjörlega haldið sig til hlés í öllum málum af slíku tagi, enda tilgangur fyrirtækisins ekki sá að stofna til eða taka þátt í deilum.
Þvert á móti viljum eins og eflaust flestir hvetja til þess að menn taki höndum saman og geri DOD heiminn bara betri, með ungmennafélagsandann í brjósti (snökt snökt yfir eigin tilfinningasemi)

Einnig vil ég þakka öllum þeim sem þátt tóku í keppninni okkar um daginn fyrir að gera þetta að þeirri skemmtun sem úr varð. Og bara um að gera að halda slíku áfram.
MKK,NECRO,GOD,MUERTE,ABEO,G-ZERO
GG

Með kveðju

siggi Jóns