Sælir allir DoD-arar

Skráning er hafin í DoD deildina hina nýju.
Leiðtogar þeirra klana sem hafa áhuga á að vera með sendið vinsamlegast skráningarbeiðni á dod@islandia.is.

Það sem þarf að koma fram:

-Nafn klans
-Nafn á leiðtoga klansins og e-mail
-Nafn á tengilið klansins og e-mail
-IRC rás klans
-Skóstærð klan-nuddarans (ef önnur en 41)
-Tímasetning (vikudagar og klukkan hvað) sem hentar klani best

Tilgangurinn með tímasetningunni er að fá smá hugmynd um hvaða dagar og klukkan hvað hentar flestum til að keppa og svo fastsetjum við tíma þegar öll klönin eru búin að skrá sig.

Umsóknarfrestur er til 23. nóv og ætlunin er að reyna að starta deildinni á mánudeginum 25. nóv og keppa tvisvar í viku. Deildin verður ekki nema ein umferð þ.a. það ætti ekki að vera erfitt að þrauka þó svo að mönnum gangi ílla.

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi skráningu eða varðandi deildina þá er einnig hægt að senda þær á dod@islandia.is, pósta hér á huga eða hitta á umsjónarmenn á #mkk

Slóð heimasíðunnar verður birt seinna í dag eða á morgun (almenn óánægja með þessi blessuðu .tk domain) þar sem við munum setja upp reglur, leikjaplan þegar skráningu lýkur og allt annað sem við kemur deildinni.

Svo það er um að gera að fylgjast vel með og hafa huga alltaf opinn, alltaf refreshaðan, alltaf í öllum IE gluggum sem… já, eða bara fylgjast með.

Kv,<br><br>[-M.K.K-] Mutterbomser

-I´ll boms your mutter any time!


<img src="http://www.islandia.is/atlih/logo.jpg">
</p
[-M.K.K-] Mutterbomser