hvernig er með þessa íslensku servera, geta þeir ekki uppfært þá þannig að þeir sem eru að nota aimbotta og wallhack verði bannaðir, það sem ég hef séð síðustu daga er að 80% af þeim eru að spila á t.d simnet mania eru að nota bæði aimbot og wallhack.


er ekki einhver lausn við þessu eða þurfum við allir að vera með wallhack og aimbot til að standa jafnt þessu fólki. Eða verður maður gjörsamlega að hætta að spila? hvernig er það fyrir fólk sem kemur þarna inn til að taka þátt í skemmtilegum leik….og lendir bara undir og hættir fljótt því aðrir standa þeim fremri…vegna SVINDLS.

mér finnst að admins á íslenskum serverum ekki vera nógu virkir í þessu, á erlendum serverum sér maður alltaf einhvern bannaðan útaf aimbot eða wallhack en hérna er þetta svo sjálfsagt að menn eru að tala um hvernig aimbottanir þeirra eru stilltir upp í leikjum og þykir það bara sjálfsagt.