Ég er bara að spá. Mér finnst nefnilega skrítið að allir bestu leikmennirnir fara alltaf í önnur clön. Shroom og Prizna fóru í TVAL, Preacher(Z) og Ravenkettle fóru í IRA og MyFriend(Armani), (Storm)Trooper, Aeon og Jackal fóru í Hate. Þetta gerðist allt á sama tíma. Síðan fór Cobra í SRT og núna sé ég að [VL]Solo er hættur og einnig farinn í Hate. Ég meina, þegar á þetta er litið, voru þetta bestu liðsmennirnir í VL. Núna getur Serial_Killer ekki spilað á netinu vegna þess að hann er ekki með internetið lengur. Hverjir eru þá eftir til að taka clan möds? Ekki margir. Ég býst við því að við yrðum eftirfarandi:

[VL]dArkpAcT
[VL]Glitz
[VL]KID
[VL]Luther
[VL]WarPig
[VL]Bendill

Og þetta lið stenst bara ef allir GETA spilað. Ég meina, maður er með nokkra aðra hérna en þeir geta ekki alltaf spilað eða eru með lélega tengingu fyrir clan mads eða maður á bara erfitt með að ná í þá! Þá kemur spurning… er [VL] að falli komið?



dArkpAcT