Ég vildi bara þakka fyrir mig fyrir mjög góðan skjálfta, Umferðirnar keyrðar hratt og allt klárað hratt og vel, og gott skipulag á þessu.
Allt CCP dæmið var bara svalt, bætti bara svona aukaskemmtun inná skjálfta og mér fannst í smástund að ég væri á einhverju mini-cpl(:D).
Ég vill líka þakka Expert búðinni fyrir að gefa þessi splendid verðlaun á skjálfta , og ég ætla alveg 100% að kíkja á þessa búð bara útaf þessu.
Armböndin voru góð góð hugmynd, ekkert pakk þarna á kvöldin og ekkert vesen.

Svo er það tvennt sem ég vill kvarta yfir,

Loftkælingin var alveg overkill, þar sem við sátum var bara norðanstinningkaldi eða eitthvað , bara skítkalt lengi vel og bara svakalegur gustur. Á lönum á að vera svona þægilega heitt, svo að vonandi getiði kíkt á þetta næst.

de_storm held ég að hljóti hýrleiks verðlaunin þennan skjálfta og verður vonandi ekki aftur. Virðist vera sem að mjög mjög margir kunna ekki rass á þetta borð, það er í engri spilun mest allan tímann og það var aftur seint í losers bracket á mikilvægum tíma, sem olli mjög spes úrslitum ( *hóst*drakevsdc*hóst* ). Vonandi verður þetta borð ekki aftur svona .. mikilvægt.

Annars bara takk fyrir mig og takk fyrir góðan og skemmtilegan skjálfta.


<br><br>______________
- Óli
- SiC|-Some0ne

<img src="http://lethe.nu/alucard.jpg“><br><a href=”http://lethe.nu/hellsing_quiz.html“ target=”new">Which Hellsing character are you?</a>
.. sometimes i wish I was brave