Á næstu helgi munu allir nördar Ísafjarðar og nágrennis sameinast í miklu nördakvöldi, þar sem tölvuleikir verða spilaðir, pizzur verða borðarar, gos í óhóflegu magni vera drukkið og svitnað upp úr öllu mannlega valdi, einzog nördum einum er lagið.


Mun þessi tölvunördasukkveisla hefjast stundvíslega einhvern tíman á föstudaginn og hætta á mínutuna… einhvað um þriðjudaginn. Auðvitað mega þeir sem eru minni nördar í sér eyða minni tíma þarna, en það er af sjálfsögðu þeirra missir.

Aðgangseyrir verða aumar 1500 íslenskar krónur miðað við það að gengi krónunar breytist ekki mikið á miðvikudeginum eða fimmtudeginum. Annars gæti það lækkað eða hækkað. En innifalið í þessu er Pizzan og gosið sko, þannig það eitt og sér ætti að vera nægilegt.

Ef þetta væri ekki nóg er búið að staðfesta það að stjörnur á borð við mig, Ella b0ner megabeib sem er bendlaður við Herra CS titillinn í núverandi umræðum og einnig er búist við því að David Bowie muni koma með hljómsveit með sér og spila tónlist fyrir okkur meðan við spilum tölvuleiki. En það er ekki alveg öruggt. Af sjálfsögðu munir þessir merku gestir glaðir undirrita eiginhandaráritanir.

Og síðast en ekki síst, það sem Hannibal-lanið slær Skjálfta og Smell út léttilega er að einnig verða í boði kökur og mjólk, eða einzog sagt er á enskunni…

Milk & Cookies for everyone!!!

Allir að panta sér flugmiða til Ísafjarðar eða keyra bara og mæta á fallegasta lanið í heiminum!

Frekari upplýsingar veittar í síma 8460211 – Fearz