Kæru Hugahaugar og dömur!

GGRN leitar eftir fríðasta fjöldamorðingjanum

GGRN, sem fer fremst í flokki klana sem vill gera veg cs sem mestan á Íslandi, stendur nú fyrir víðtækri leit að sætasta cs-leikmanninum. Sú skoðun hefur verið uppi að tölvudrengir séu ófríðir nördar; feitir, bólugrafnir og illa vaxnir. GGRN segir þessum fordómum stríð á hendur. Vísast er það rétt að yndisfríðir, ljóshærðir og veikgeðja piltar eru ekki á hverju strái þegar cs-kúltúrinn er annars vegar, en þá er vissulega að finna. Eða hvers vegna halda menn að hómósexúalismi sé hlutfallslega meiri í cs en gengur og gerist. Þá staðreynd styðja rannsóknir einsog Preacher hefur bent á í fornri Huga-grein. Til að hlutleysis og velsæmis sé gætt koma GGRN-menn ekki til greina. Það er kunnara en frá þurfi að segja að í því klani er mest breiddin hvað fríðleik snertir enda er m.a. valið í klanið með það til hliðsjónar að ekki menn þurfi ekki að skammast sín úti á götu í fylgd félaga sinna. Vill GGRN ekki einoka þessa keppni. Við lýsum hér og nú eftir tilnefningum, sem og myndum. Þá verður sett upp myndasíða á netinu með fallegustu cs-drengjunum og í kjölfarið verður herra cs valinn. Má fastlega búast við því að sá muni heldur betur vaða í Skjálfta-grúppís í kjölfarið.

Bestu kveðjur,

[GGRN]Rooste