Sæl veriði öll sömul.

Ég hef lengi verið að velta fyrir mér hvað fólki finnst um þessar mottur, kosti þeirra og galla.

Persónulega finnst mér Funcmat með mun betra grip og mun betur hönnuð á alla vegu, eins og t.d. hvað hún er þunn, og snúruhaldarinn og þess háttar.

En svo á móti kemur að friction á henni er mun hærra, nema kannski með mouseskates, en þegar mouseskates eru komnir undir hana (sem mér var sagt að ex-NiP settu undir hjá sér) þá er tilgangurinn með gripinu sama sem farinn (mín skoðun).

Ég er sterklega farinn að halda að þeir hafi sett mouseskates undir til að fá svipaðann fíling og Icemat býður uppá en nota Funcmat til þess að fá sponsorship.

Hvað finnst ykkur um þessar mottur, kosti þeirra og galla?

Preacher.