Jæja, þá er komið að 7. umferð TCS2.
Spilað er de_cbble.
Eins og venjulega mun ég spá fyrir um úrslitin hérna, hef reyndar ekki haft tíma í það síðustu 2 umferðir.

A-Riðill:

SiC - Hate
- SiC tóku GGRN|Leibstanarte, DON, Dc og Lord nokkuð létt og lentu svo í nokkuð rough leik gegn MurK-B en unnu þó 13-11. Hate hinsvegar hafa unnið GGRN|Leibstanarte, Lord, DON og MurK-B nokkuð létt, en unnu Dc og VON-2 í mjög close leikjum, báðir 13-11. Hate eru náttúrulega með sterka spilara og SiC einnig. Þetta verður fjörlegur leikur en ég hygg að SiC taki þetta nokkuð örugglega.
Spá: 16 - 8 fyrir SiC.

NeF - GGRN|Leibstanarte
- NeF unnu LSD nokkuð létt en hafa unnið DeWalt og GEGT1337 í close, 13-11, leikjum, og töpuðu svo fyrir VON-2 í síðustu umferð. GGRN|Leibstanarte hinsvegar hafa tapað 3 og unnið 2. NeF búnir að vera að fá nýja leikmenn á fullu og nýjustu eru held ég SnoZ og enzyme, er ekki viss um það alveg samt. Þeir ættu að geta strattað GGRN svolítið. GGRN eru held ég í þessu mestmegnis að skemmta sér þó sigur sé ávallt sætur, og býst við að þeir nái að troða inn 6-7 roundum.
Spá: 18 - 6 fyrir NeF.

MurK-B - GEGT1337
- MurK-B verið að fá forfeit alla leikina nema síðasta leik, hafa ekki verið neitt með lið. En mættu svo með lið gegn SiC og náðu þar í hörkuleik sem endaði 13-11. GEGT1337 er eins og ég hef sagt eitt flottasta clan Íslands og eru í þessu bara til að skemmta sér. GEGT1337 hafa tapað öllum nema einum og munu reyna allt hvað þeir geta til ad kreista fram sigur í kvöld, en því miður án árangurs.
Spá: 22 - 2 fyrir MurK.

LSD - DON
- LSD er clan sem hefur aldrei gefist upp og hætt sama hvað gengur á, og hafa sennilega lifað einna lengst af clönum Íslands miðað við getu. Þeir hafa á þessu tímabili unnið 2 og tapað 2 og munu í kvöld taka 3ja sigurinn. DON hinsvegar eru með 3 sigra og 2 töp. Bæði þessi lið hafa verið með svipað örugga sigra og verður þetta örugglega spennandi leikur en þó mun LSD taka þetta í lokin.
Spá: 14 - 10 fyrir LSD.

LORD - DeWalt
- LORD eru með 4 töp og einn sigur og munu í kvöld sennilega tapa sínum 5ta leik á tímabilinu fyrir DeWalt sem hefur ekkert gengið núna, eru núna með engann sigur og 6 töp. DeWalt eru reyndar búnir að vera að fá einhverja spilara held ég og munu þeir kannski ná að rétta úr kútnum hjá þeim.
Spá: 17 - 7 fyrir DeWalt.
-
Dc situr hjá.
VON-2 situr hjá.

B-Riðill:

ASNI - VON-1
- ASNI eru búnir að standa sig vel til að byrja með, komnir með 4 sigra og 1 tap og lítur allt ágætlega út hjá þeirra kewl liði. VON-1 hinsvegar ekki verið að standa undir væntingum kannski, með 1 sigur, 1 jafntefli og 4 töp. Lítur sannarlega ekki eins vel út hjá þeim og ASNI. Held að þeir muni samt ná að rífa sig upp í kvöld og framkalla hörkuleik sem endar með close sigri drengjanna í ASNI.
Spá: 14 - 10 fyrir ASNI.

UN - Love
- UN hafa ekki verið að sína takta enn sem komið er, aðeins með 1 sigur og svo 2 töp, reyndar bara búnir 3 leikir hjá þeim. Love einnig aðeins búið með 3 leiki, 2 sigrar og 1 tap. Love hafa reynsluna sem UN hefur ekki og munu þeir taka þetta nokkuð örugglega í kvöld.
Spá: 19 - 5 fyrir Love.

Senior - GD
- Senior eru að koma mér mjög á óvart núna á þessu tímabili, eru jafnir ASNI með 4 sigra og 1 tap og standa sig mjög vel. GD hinsvegar nýtt lið og ekki komnir með neina reynslu og/eða æfingu, með 1 sigur og 4 töp. Þótt GD vilji auðvitað breyta því er Senior of stór biti að kyngja.
Spá: 20 - 4 fyrir Senior.

MurK-A - Drake
- MurK-A er eins og allir vita gjörsamlega óstöðvandi og eru efstir með 4 sigra og ekkert tap. Drake hinsvegar með 3 sigra og 1 tap. Drake eru náttúrulega þekktir fyrir ótrúlegt Módem skillz frá því áður og mjög gott spil núna, en MurK-A eru mjög strattaðir og svaka spilarar. MurK-A mun ekki eiga í neinum erfiðleikum með Drake í kvöld.
Spá: 22 - 2 fyrir MurK-A.
-
TVAL situr hjá.
GGRN|Das Reich situr hjá.
Mod situr hjá.



Ég vill svo minna fólk á að hafa ScoreBots og HLTVs ef þið getið. Og svona reminder svo ég þurfi ekki alltaf að svara þessari spurningu 10x á hverju kvöldi TCS:
Við (TCS Admins) hóstum _EKKI_ HLTV server fyrir ykkur, við höfum ekki resources í það. Það er lítið mál að ég held ef þú ert með ágæta tengingu og fína vél. ScoreBots eru einnig auðveldir í notkun. Þeir sem ég veit um eru Jubii IRC Bot en veit ekki hvar hann er fáanlegur, og svo HLSW IRC Bot, www.hlsw.de - fáanlegur þarna.

NÝJAR IP-tölur:
194.105.226.116:27045 : rcon og password = tcs1 -( MurK-A vs Drake )-
194.105.226.117:27015 : rcon og password = tcs2 -( SiC vs Hate )-
194.105.226.117:27025 : rcon og password = tcs3 -( NeF vs GGRN|Leibstanarte )-
194.105.226.117:27035 : rcon og password = tcs4 -( MurK-B vs GEGT1337 )-
194.105.226.117:27045 : rcon og password = tcs5 -( LSD vs DON )-
194.105.226.117:27055 : rcon og password = tcs6 -( Lord vs DeWalt )-
194.105.226.117:27065 : rcon og password = tcs7 -( Ónotaður )-
194.105.226.116:27055 : rcon og password = tcs8 -( ASNI vs VON-1 )-
194.105.226.116:27025 : rcon og password = tcs9 -( UN vs Love )-
194.105.226.116:27035 : rcon og password = tcs10 -( Senior vs GD )-

– Svo minni ég á að það á EKKI að nota tcs serverana undir scrim á meðan á umferð stendur, það verður ekki liðið áfram. –

Þá er það komið held ég, höfum svo gaman af þessu! :)

Fyrir hönd Thursinn Counter-Strike,
Sigurður R.H.
TCS|Siggi
Sigurður Helgason