Það hafa komið inn einhverjir korkar um hvernig á að gera myndband í cs. Ég sjálfur er nýliði í þessari iðn en get þó sett saman hið ágætasta video á nokkuð einfaldan hátt.

Þau forrit sem maður þarf að hafa eru:

Counter-strike (auddað :D)
Geekplayer
Videomach
Paint
Moyager

Þessi eru alveg nauðsynleg en ef þú vilt gera hreyfimyndir t.d. þegar nöfn eru kynnt þá er ágætt að nota Flash frekar en Paint í það. Einsog ég segi þá er þetta bara uppá að geta gert einfalt video.

skref nr. 1 er að taka upp nokkur skrimm/public eða bara hvað sem ykkur sýnist og geyma þau. console skipunin til að gera þetta er record “nafnámyndbandi”
til að hætta upptöku er skipunin Stop

næsta skref er að skoða demoið í Geekplayer. Þar skaltu reyna að finna það sem þú vilt hafa í videoinu og ágætt er að glósa hjá sér hvenær sá myndpartur kemur.

síðan er að breyta þessu í þónokkurn slatta af bmp filum. það er gert með því að þú skrifar í console meðam þú ert að horfa á demoið
Startmovie nafnámynd fpsímynd
dæmi: Startmovie ÉgaðveraLeet 24
(24 er standard fps í bíómyndum og það virkar ágætlega… ef fps er mjög hátt þá kemur myndin til með að taka óhemju mikið pláss.)

Við þetta býr talvan til einhvern slatta af bitmap fælum í counter-strike möppuna. þeir heita allir nafnámynd0001 nafnámynd0002 og svo framvegis.

Þessa fæla skaltu cutta og setja í nýja möppu.

Næst skaltu opna Videomach forritið. Síðan velur þú Open files og opnar allan þennan haug af bmp fælum sem þú ert með. Þá er að velja fps-ið í myndinni. Það gerirðu með því að fara í files, velja frame rate og setja það í það sama og þú recordaðir myndina á í cs (til dæmis 24).

Síðan geturðu einfaldlega ýtt á Preview flipann og valið create preview. Þá sýnir talvan í svarthvítu hvernig myndin kemur til með að líta út.

Þetta má endurtaka eins oft og hver vill og safna saman glæsilegum lucky headshots og öðru sem áhuga vekur og raða því saman í mynd. Það er auðvelt að raða þessu öllu saman með því að nota “insert files above current position” skipunina í videomach.

En einsog gefur að skilja þá vilja flestir hafa einhverja “skemmtilega” teknótónlist undir myndinni og til að setja mp3 fæl inn þá gerirðu eftirfarandi:

Þú velur open í insert audio og velur síðan mp3 lagið sem þú vilt hafa. t.d. Oops I did it again…. eða annað álíka skemmtilegt. síðan hægrismellirðu á lagið og velur hvar þú vilt byrja og hvar þú vilt enda (in point og out point).

Nú er bara að búa til kynningu… einsog ég sagði í upphafi þá er ágætt að gera það bara í paint ef maður nennir ekki að læra á flash eða annað álíka. Þar býrðu bara til mynd og býrð til einhvern slatta af copyum og setur inn (nota reiknigetuna til að ákveða lengdina þarft t.d. að hafa 24 myndir til að þetta vari í eina sec ef þú hefur sett fps sem 24)

Nú er ágætt að skoða myndina aftur í Preview og sjá hvort að þú sért sátt/ur.

Nú er myndbandið tilbúið. Þá er bara að troða þessu rusli öllu inní einn video fæl. Það gerirðu með því að velja myndina af diskettunni í videomach. síðan velurðu nafn myndarinnar og hvert hún á að fara. Þetta seturðu bæði í audio og video (sama nafn svo að þetta verði einn fæll). síðan velurðu video og gerir resize og velur upplausnina sem þú vilt hafa. 320x240 er ágæt og einnig 640x480. það er mikilvægt að hafa upplausnina ekki of mikla því að þá verður fællinn mjög stór. Svo ýtirðu bara á OK og ýtir á start proceccing sem er við hliðina á diskettunni. Þá gerir tölvan þetta að einum video fæl sem hægt er að horfa á t.d. í windows media player.

En varnaðarorð. Þetta er þolinmæðisvinna og það er betra að vanda sig en að flýta sér. og á meðan vinnslu stendur fer gríðarmikið pláss af harða disknum í þetta. Ég er að vinna að Exile myndbandi og er kominn með 40 sec og tekur það u.þ.b. 1.77 Gígabæt. (þessir helvítis bmp fælar taka mjög mikið pláss).

Vona að þetta komi ykkur af stað í myndbandagerð og ég vonast til að sjá fleiri klön skella myndböndum á netið. Einnig vona ég að Zlave og aðrir adminar hérna verði duglegir við að koma þessum myndböndum fyrir á huga til að dloada þeim.

Þakka fyrir mig
Pálmar Garðarsson
Exile | Hellchild
Pálmar