Það eru ýmsar raddir á lofti um að animationið í 1.0 sé lélegt og ljótt, fari gífurlega í taugarnar á manni o.s.frv. en ég verð að segja að ég er alls ekki sammála. Jú vissulega er þetta öðruvísi og mikil breyting frá betunni en samt sem áður eru modelinn miklu flottari og hreyfingarnar miklu mannlegri en áður, ég er viss um að þetta sé bara eitthvað sem að á eftir að venjast og þegar þið eruð búnir að venjast þessu þá eigið þið eftir að hlæja af því hvernig gömlu modelin litu út.

Sem sagt mér finnst 1.0 rúla !!! Nýji sniperinn er geðveikur, skýtur þvílíkt hratt og nýja skammbyssan er sjúkleg snilld !!!
UMP subbinn er alveg hreint ágætur að vísu finnst mér of fá skot í honum en svona er hann víst í alvöru þannig að það er víst lítið hægt að gera við því.

1.0 rules !!!!
[FreeFrags]@postle