Virðulegu tölvunördar!

Talsverð umræða og harkaleg skoðanaskipti áttu sér stað hér á Huga fyrir ekki margt löngu vegna pósta á cs-korkinn sem innihalda spurningar tæknilegs eðlis. Eru margir þeirrar skoðunnar að slíkir póstar hafi verið svo miklir vöxum að þeir hafi á tímabili drekkt heilbrigðum skoðanaskiptum þar á bæ. Þessi skoðun á fullan rétt á sér að mati stjórnenda hér.

Af alkunnu lipurð kom Zlave* okkar til móts við þessar skiptu skoðanir og miðlaði málum með því að setja upp sérstakan Hjálpar-kork sem er einmitt kjörinn vettvangur pósta sem innihalda áðurnefnd óp, hróp og köll um hjálp vegna tæknilegra örðugleika.

Nú hefur Hjálparkorkurinn verið uppi um hríð til aðlögunnar en glámskyggni virðist vera með eindemum meðal hl/Hugara og ekkert lát er á þessum póstsendingum inná cs korkinn þrátt fyrir Hjálparkorkinn. Hér er því aðvörun og teljum vér stjórnendur að hún sé sett fram í tíma:

<b>Frá og með mánudeginum 6. maí 2002 að telja verður umsvifalaust eytt af cs-korki öllum skeytum sem eru þess efnis að verið sé að leita hjálpar við einhverjum tæknilegum atriðum og tölvustillingum.</b>

Ekki er hægt að setja þetta fram með greinarbetri hætti og teljum við, hinir samtaka stjórnendur hér á þessu vefsvæði, að allrar sanngirni hafa verið gætt í þessu sambandi. Þessi aðgerð miðar að sjálfsögðu að því að gera vefsvæðið okkar betra.

Með bestu kveðju,

[GGRN]Rooste