Já loksins kom að því að ég er búinn að lesa nóg til að mynda mér skoðun á máli þessu öllu sem mikið hefur verið ritað um hér á Huga.is að undanförnu.

Skítkast það sem átt hefur sér stað hér undanfarið myndi hvergi í hinum siðmenntaða heimi líðast á opnu vefsvæði og spyr ég því, hvers vegna í ósköpunum er það látið líðast hér.

Dónaskapur og hroki hjá tveimur einstaklingum er slíkur að ég sem fullorðin einstaklingur óska eftir IP banni á þessa tilgreindu menn, sem eru Blackpitch og brokenhomer ef ég man nöfn þessara glötuðu sála rétt.

Ef ekki er hægt að banna IP tölu þeirra til að sporna gegn svívirðingum, dónaskap og klámkjafti þeirra þá sé ég ekki hvernig hægt er að hafa þessa síðu opna án þess að hér fari fram adultcheck.

Nú bið ég forráðamenn HUGA.IS að veita svör, því ef ekkert verður gert þá er þetta orðið spurning um dreifingu á ósæmilegu lesefni, því miður vegna þessara tveggja manna þá er slíkt brotlegt gegn lögum og spurning um hvort hægt sé að láta slíkt viðgangast.

Ég óska hér eftir stuðningi viti borinna manna í CS heiminum um að tafarlaust verði notað IP bann á þessa einstaklinga svo að við hinir getum áfram notið þess að tjá okkur hér um áhugamál okkar, sem jú er CS og meira en leikur í augum margra okkar.

Annað er með uppsagnir Admina hér á HUGA.IS, vinsamlega komið aftur sem fyrst, því einu svörin sem mark var takandi á varðandi tímasetningar og reglur voru frá ykkur komin.

Ekki efa ég að fórnir hafi verið færðar í heimilislífi ykkar og frítíma fyrir okkur fíklana, og eigið þið rós í hnappagatið skilið fyrir það og þúsund þakkir.

Með von um stuðning og óskir um heimkomu Admina HUGA.IS.


[GGRN]HUGO*