Núna rétt áðan var landsliðið valið. Ég hélt fund með 10 “leaderum” af 5 stærstu klönum landsins, Murk Love Nef Sic og Hate, og völdum 20 manns í landsliðshópinn í Counter-Strike. Ég lét hina kjósa 10 manns, ég valdi sjálfur 4 og svo völdu hinir í samineiningu 5 manns í viðbót eftir að við ákváðum að hafa hópinn 20 manns.

Þetta er “landsliðshópur” en það fá ekki allir endilega að spila neina leiki í keppninni. Við munum hafa þannig fyrirkomulag að skipta þessu niður í 4 lið (sem gætu breyst ef tilefni er til) sem myndu síðan keppa um að spila leikina. Ég mun hafa marga æfingaleiki milli þessara liða fyrir sjálfa Evrópuleikina, og þeir verða allir vonandi settir á HLTV þannig að þið getið allir speccað þá að vild.

Hópurinn sem var valinn er svona:

Murk-Blibb
Murk-Gambler
Murk-Ravenkettle
Murk-Ashtray
Murk-Deathhunter
Murk-MrRed
Murk-Zombie
Murk-Dday
Murk-Wardrake
Love-Snoopy
Love-Puppy
Love-Rocco$
Love-Playboy
Sic-Knifah
Sic-Someone
Sic-Cyrus
Nef-Sickpuppy
Nef-Azazel
Nef-Preacher
Sat-Azuredrake

Þeir sem voru valdir skulu tala við mig strax ef þeir hafa ekki tíma í þetta, því við þurfum að taka slatta af æfingum fyrir þetta mót. Það er lítið mál að skipta einum út og setja annan í staðinn.

Ég veit að það eru mjög margir í Murk í þessu, en svona fóru kosningarnar (ég valdi sjálfur AÐEINS 4 spilara 2 murk og 2 love) en tel ég þetta eðlilegt þar sem Murk hefur lang breyðasta hópinn af sterkum spilurum, síðustu 2 skjálftar t.d. voru 2 murk lið í efstu 3 sætunum á Skjálfta.

GG og GL fyrir þá sem spila í þessu móti. Þetta verður mjög erfitt en vonandi hafa strákarnir bara gaman af þessu.