Ég ætla að henda hér inn upplýsingum með peninga í CS 1.6, veit ekki hvort þetta á við um source líka.

Peningamálin eru eitthvað sem spilarar hafa átt erfitt með að muna og ef þú kannt þetta utanaf þá áttu léttara með að finna út hvort að andstæðingurinn eigi pening eða ekki.

Hér fyrir neðan skrifa ég fyrir CT & svo TERR, hvernig roundið tapast eða er unnið & hvað HVER spilari fær.

Byrjum sigur roundum hjá CT.
Tíminn rennur út, ekki búið að planta bomb. $3250
Allir terr drepnir. $3250
Bomb defused. $3250

Tap hjá CT.
Allir CT deyja. $1400
Bomb springur. $1400

Sigur round hjá TERR.
Allir CT drepnir. $3250
Bomb springur. $3500

Tap hjá TERR.
Allir TERR deyja. $1400
Náið planti -> Bomb defused. $2200(1400+800fyrir plant)
Tími rennur út. $1400 (Þeir sem lifa af fá $0)

Smá sem fáir vita af:
Ef þið tapið roundum í röð fáið þið auka $500. Þó hættir þetta ef þið tapið meira en 5 roundum í röð.

Tap 1 $1400
Tap 2 í röð $1900 (1400 + 500)
Tap 3 í röð $2400 (1900 + 500)
Tap 4 í röð $2900 (2400 + 500)
Tap 5 í röð $3400 (2900 + 500)

Eftir 5 í röð hættir þetta, semsé max $3400.
Ef þið vinnið round eftir þetta hættið þið að fá $3400 fyrir tap og byrjið aftur á byrjun með $1400, hins vegar er gott að hafa í huga að ef þið eruð TERR að tapa en náið að planta bomb fáið þið alltaf auka $800 á mann.

Vonandi að þetta hjálpi einhverjum, fyrsta greinin mín hér svo ekkert vera að henda skít á mig fyrir byrjendamistök ef einhver eru.

Fékk smá hjálp á veraldarvefnum með tap í röð kaflann.

Gummi "gumgum" Hólm.