Ágætu félagar!

Mig langar til að taka hér til umræðu vandamál sem hefur verið viðloðandi cs lengi, sem sagt, misnotkun á rcon. Vísir af umræðu um þetta mál var reyndar á korkunum í gærkveldi og ég ætlaði að láta nægja að svara náunga sem kallar sig Cobra eða Fatz0r, en þetta er greinilega nokkuð viðkvæmt mál því svo virðist sem þræðinum hafi verið læst. Ég held að þeir sem hafi með public-servera að gera ættu að fara rækilega yfir þessi mál því það er alveg klárt að margir þeirra sem eru með þessi réttindi ráða engan veginn við það vald sem því fylgir að geta sparkað félögum sínum út. Ég hef bæði margoft séð dæmi þess og lent í því sjálfur, t.d. í gær og stakk þá niður penna.

Bara svo allir séu með á nótunum þá er rétt að fara aðeins yfir aðdragandann: Ég var að spila á Fortress A og lenti í liði terrorista á Italy. Þeir voru að rústa ct, russuðu stanslaust niður í bæ og rúlluðu yfir þá sem þar voru. Mér sýndist nokkuð ljóst að þetta var mjög ójafn leikur – þetta var slátrun - og reyndi því að skipta um lið til að reyna að jafna leikinn en komst ekki því það voru of margir í ct. Ég bað því leikmann nokkurn sem greinilega var ekki að leggja mikið af mörkum í liði ct að skipta við mig, reyndar þrábað hann því það komu engin viðbrögð. Þá sagði gaur sem kallaði sig Fatz0r, (en honum gekk afar vel í þessum leiðinda leik) við mig: “Þegidu n00b!” Gott og vel, þetta er greinilega maður sem kann lingóið.

Næsta borð er dust og ég næ Fatzor út með handsprengju og læt kné fylgja kviði, í næsta roundi, með setningunni: “og hoppaðu svo í skithusid”. Þá svarar þessi verseraði gaur: “Langar þig í 10 mínútna bann?” Nú, ég svaraði þessu yfirlætisfulla fifli að sjálfsögðu: “Haltu kjafti.” Og þá var mér kikkað.

Ég er einn þeirra sem hef gaman að því að kjafta (og jafnvel rífa kjaft) þegar ég spila. Mér finnst það tilheyra leiknum. Þetta er reyndar umdeilt og oft hefur maður heyrt í mönnum sem hljóma einsog teprulegar sjötugar kerlingar í teboði þegar þeir tjá sig um hvernig framkoma manna eigi að vera í þessum drápsleik. Það kemur þessi máli óbeint við. Staðreyndin er sú að í leiknum er gefinn möguleiki á að tjá sig. Því er það með öllu óþolandi að hafa yfir höfði sér mannvitsbrekkur á borð við Cobra sem eru í aðstöðu til að sparka manni út úr miðjum leik. Ég leyfi mér til dæmis að efast um að drengurinn skilji hvort verið sé að móðga hann með orðinum mannvitsbrekka eða ekki. Við getum tekið sem dæmi hans lýsingu á þessum atburði sem er upphaf þessa alls:


“ég var Fantz0r á Fortress ég var að spila í cs_italy þá er gaur þarna inni sem kallar sig mjaldurinn (Rooster) eða eitthvað álika og segir við newbie sem var með 0-11 í terror að hommast yfir í ct svo mjaldurinn kæmst í terror útaf ct voru að rústa þessu hver segir newbie að hommast yfir í lið og af reyndum cs spilara sem heitir [GGRN]Rooster …ekki nóg að sagði við hann hvort hann vill 10 min bann þá sagði hann mér að halta kjafti …hvað átti ég að halda þetta væri rooster …en hverju breyttir reglur gilda við okkur alla …..btw rooster reyndu að þroskast bjóst við meira af þér …. “

Ég geri ráð fyrir því að hann hafi verið að vanda sig! Mig langar til að vekja sérstaka athygli á þessu yfirlætisfulla: “…..btw rooster reyndu að þroskast bjóst við meira af þér ….” en það lýsir nokkuð vel því hvern mann Cobra hefur að geyma. Þá langar mig til að spyrja menn hvort þeir telji að setningin “hoppaðu uppí skíthusid” sé þess eðlis að hún kalli á rauða spjaldið? Hvað þýðir “skíthús” í þessu samhengi? Hvað þýðir setningin: “sleiktu gölt”? Eða “lepja skinku”? svo ég vitni í Johnny Naz. O.s.frv. o.s.frv. Þetta er túlkunaratriði og hver lítur sínum augum silfrið eða “it’s in the eye of the beholder”.

Að hafa rcon er vandmeðfarið og mér sýnist alveg ljóst að margir valda því engan veginn. Megin tilgangurinn hlýtur að vera sá að geta sparkað þeim sem eru að “teamkilla” og eru “AFK”. Að vega og meta talsmáta þeirra sem eru að spila er öllu vandmeðfarnara og ég hlýt að beina þeim tilmælum til þeirra sem stjórna serverunum að fara í saumana á þessu máli.

[GGRN]Rooste