Hérna er lítill byrjenda bæklingur sem ég sendi um daginn á 3 dömur sem vildu ná frægð og frama í cs.

“Kæru Nýliðar

Til hamingju á að hafa svo mikinn áhuga á þessum yndislega tölvuleik, það er svo mikið sem hann hefur uppá að bjóða að ég gæti verið í allan dag að blaðra mig vitlausan en þið viljið auðvitað fá ”the good stuff“.

Það er margt sem ”pro“ spilarar gera sem maður lærir hægt og rólega dag eftir dag á serverum. Það eru hlutir einsog þegar þú lendir á móti óvin og þú ert farinn að vita hvort þú sigrar eða ekki og þú hefur 90% rétt fyrir þér.

- Hreyfing -

Regla nr. 1 2 og 3 er að hafa sensitivity (músarhreyfing) ekki of hátt og ekki of lágt, ég t.d. á minni músarmottu fer 1/4 - 1/3 úr hring með einni hreyfingu yfir mottuna, málið er að geta stjórnað recoilinu (hvað byssukúlurnar dreyfast) eftir þinni hentugsemi.

Regla 4 í þessu máli er að alltaf beina byssunni í þá aðal átt sem þú ert að fara s.s. að nota strafe takkana til að ferðast og haga sér einsog fbi kall ; ) þannig að strafea framhja horni en ekki labba beint áfram og snúa svo við, þannig verður þú kanski á undan óvininum að skjóta.

Regla 5 er að vita í byrjum rounds hvað þú ætlar að gera, s.s. ekki stoppa í miðjum gangi og snúa svo við, þá er dýrmætur tími farinn í vaskinn.

Regla 6 er bara að spila, ótrúlegustu hlutir sem maður lærir með því að bara fara á server, þú þarft ekkert að heita þínu nicki og kaupa bara P90 t.d. Það er svo margt sem maður lærir á að fara inná server og nýta allan spilatíman sem þú hefur

- Byssur -

Colt Ak47, Mp5 og AWP eru algeingustu byssurnar og hérna er smá tafla um þær

Stutt Færi Langt Færi Trick
MP5 Frábær Gleymdu því Crouch Hop Virkar Vel
AK 47 Góð Sæmileg 2-3 Kúlu Burst
COLT Góð Silencer Betri 3-4 Kúlu Burst
AWP Ekki Góð Frábær Skipta yfir á Skambyssu ef vandræði

Málið með zoomið á Steyr Aug og Commando er að fólk segir ”þetta er ömurlegt" en þú þarft að nota þetta einsog skambyssu en ekki bursta einsog vélbyssu

Flash er sniðugt tæki og skal nota ef þú ert að fara inn í svæði sem þú veist ekki hvort einhver óvinur sé inní, gott er að fynna stað á vegg sem þú veist að flashið springur í miðjum gangnum.

Sprengja.. Marga veggi er hægt að sprengja í gegnum ef þeir eru nógu þunnir eða borðið hannað að það sé hægt að sprengja þarna í gegnum.

- Stillingar -

hud_fastswitch 1 (þá þarftu ekki að ýta á skot takkan til að staðfesta byssuna sem þú ert að velja)
bind q lastinv (mjög nytsamleg binda sem skiptir yfir á síðasta vopn sem þú notaðir)

-
Svo er bara málið að vera með sjálfstraust og segja við sjálfan sig einsog [.Love.]Playboy segir

“núna kemur mad round” og oftast er það round mad hjá honum ; )

Keðja. Sinai"