Bloopers Video Sælt verið fólkið.

Ég hef ákveðið að reyna að framkvæma hugmyndina mína um að gera íslenska mistaka CS 1.6 Video. (Bloopers) Ég get ekki tekið CS:S að mér því að ég á ekki cs:s. :)

Ég gerði póst í Counter-Strike dálknum og ákvað að færa það hingað þar sem lítið var sent á mig. Ég er aðeins búinn að fá 2demo send og sjálfur er ég með 2.

Ég ætla ekki að leggja neina áherslu á intro, synca svakalega við lögin, outro né þannig kjaftæði. En verð með topp quality af minni bestu reynslu og keyri fram fyndin mistök.

Mistök á við teamkill, grenum, plömma, sprey, fáranleg AWP mistök og meira má telja. Ég vil ekki sjá neitt sem er leikið. :)

Ef þið eigið eitthvað massað fyndið efni, endilega zip-ið/rar-ið demoið ásamt nick.txt (Text Document) fæl sem inniheldur :

* Hvaða round gerðist það.
* Hvort liðið varst þú í.
* Hvaða nick þú notaðir í scriminu.
* Real nick.

Væri skemmtilegra ef þið ættuð HLTV.

Fyrir þá sem kunna ekki að zip-a/rar-a þá einfaldlega hægri klikkaru einhverstaðar á skjánum, Desktop-inu t.d., New -> WinRar Archive, dregur síðan demo-ið og nick.txt infoið á .rar fælinn.

Þið getið annað hvort addað mér á msn og sent þar eða sent mér mail á : muminsna@hotmail.com (Sama addressa fyrir mail og MSN)

Endilega ekki vera feimin þó svo að þið hafið einhvern tíman suckað og gert ykkur af fífli. Þetta er bara til að hafa gaman af og hlægja.

Kv. #newtactics ' Felix

ps. Fékk innblástur frá þessum video-um.
http://www.youtube.com/watch?v=6U1_9c9XxYc
http://www.youtube.com/watch?v=11ZfWjxAHBI&feature=related
(Þeir sem ekki hafa séð CPL video-ið, bara benda á það að Murk-Kristjan(Krissi) á fyrsta fraggið. =)