Lan-Setrið óskar VON til hamingju með “Sturtuna” en svo kallast herbergið sem þeir hafa komið sér upp hjá okkur. Það virðist fara bara nokkuð vel um VON kappa sem stunda þá iðju að drepa mann og annan í Counter-Strike í Sturtunni. Þeir nota ofurtenginguna sem Lan-Setrið býður upp á sem er 10 mb ljósleiðari í boði Þekking-Tristan. Við VONum um að samstarf þetta megi vera báðum aðilum til framdráttar.

Ef aðrir leikjakappar hafa áhuga á svipuðu dæmi er þeim bent á að hafa samband við okkur í síma 544-4442 eða nota email okkar sem er lan@lan-setrid.is.

Vil einnig nefna að 8 liða úrslitin í CS Thursadeildin verða spiluð í Lan-Setrinu og munum við að sjálfsögðu klára þau áður en hafist er að koma öðrum herbergjum upp.

Með kveðju

Lan-Setrið
Dalvegi 24
Kópavogi
www.lan-setrid.is