Nú er búið að finna nýjan dvalarstað fyrir 32 manna serverinn okkar sem allir þekkja.

Nýja ip talan er skjalfti15.simnet.is:27015 (194.105.226.115:27015)


Um er að ræða margfalt öflugri vél en þá sem er að keyra serverinn í dag. Gripurinn kemur frá HP og inniheldur 2x PIII 1.26ghz cpu, 2gb innra minni og 18gb 10k snúninga disk.

Gamla vélin verður notuð áfram í Half-Life leikjaþjóna.

Lokað verður á gömlu ip töluna klukkan 18:00 á morgun 22.jan. En nú þegar er búið að opna á nýja servernum.

zlave