Það eina sem Love eða meðlimir þess liðs hafa gert rangt í þessu máli er að svara svona fáránlegum Flamum Frá nokkrum ónefndum aðilum sem hafa risið upp.. Flamum á borð við yfirlýsingar þess efnis að Love séu búnir að vera að reyna að fá menn rekna úr liðum og lið rekin úr deildum og svo framvegis. Þessar yfirlýsingar eru með öllu ósannar. Við höfum ekki borið okkur eftir því að fá neitt lið né leikmenn rekna úr deildum, hitt er annað mál að við höfum að sjálfsögðu sagt öllum sem vilja heyra hvað gerðist í ICSN deildinni á síðustu leiktíð og leyfum mönnum að draga eigin ályktanir.

Ég meina hvað er það að ráðast á okkur fyrir að hafa tilkynnt atvik sem var beint gegn okkur, erum við allt í einu orðnir glæpamenn fyrir það eitt að reyna ekki að halda því leyndu þegar aðrir traðka á okkur? Ef einhver myndi gera tilraun til að stela bílnum þínum eða öðru sem þér er annt um berð þú þá einhverja skyldu til þess að halda því leyndu til þess að vernda mannorð þjófsins, ég held ekki.

Við erum orðnir leiðir á þessu máli og ætlum ekki að láta draga okkur niður í frekari Flame stríð, ef þið endilega viljið then Flame on, við ætlum allaveganna ekki að taka þátt í því.

Fyrir Hönd [.Love.]
Froggy