Eins og vart hefur farið fram hjá nokkrum áhugamanni um counterstrike síðasta sólarhring eða svo, þá hefur allt verið á suðupunkti vegna “uppákomu” í síðustu umferð ICSN. Eins og flestir hafa vonandi gert sér grein fyrir nú þegar, þá snýst málið um það að 2 leikmenn úr NeF ásamt 2 leikmönnum úr Murk ákváðu að skrá sig í evil fyrir síðustu umferðina og spiluðu leik á móti Love undir “dulnefnum”. Mér hefur sýnst á viðræðum við þessa aðila að markmiðið hafi verið að koma í veg fyrir sigur Love.

Þetta var ekkert annað en siðferðisbrestur hjá þeim sem um málið vissu - sem ég held að hafi ekki verið fleiri en þeir sem þátt tóku. Skal þó ekki fullyrða um það. Taka það skýrt fram að undirritaður vissi ekki af þessum ráðahag fyrr en daginn eftir (á föstudeginum). Það síðasta sem ég ætla að gera er að verja gjörðir þessara manna. Ég vil taka undir með Dday sem skrifaði kork á Huga í gærkvöldi (http://www.hugi.is/hl/korkar.phpsMonitor=viewpost&iPostID=420938&iBoardID=58).

Sömuleiðis vil ég biðja þá sem fyrir óþægindum, leiðindum eða öðru urðu vegna þessa máls afsökunar fyrir hönd NeF og ítreka það að þetta var langt langt langt í frá eitthvert grand-plott heilla klana heldur ákvörðun einstaklinga sem þeir héldu fyrir sig.

Leiðinlegt mál frá upphafi til enda og ég vona að því sé lokið hér með.

F.h. NeF

BenDove