Nornaveiðar eru skemmtilegar ha?

Miklar umræður hafa verið um svindl í dag, þar á meðal um mig og hvort ég svindli eður ei. Allar pælingar snúast í kring um einhvern lista frá fortress.is um svindlara sem hafa “náðst” þar. Ég er sennilega þekktasti spilarinn á þessum lista, og lítið verið minnst á aðra.

En það skrýtna er að ég er ekkert þekktasti spilarinn þarna.

Anus 212.30.210.81 689399 Mon Dec 24 20:02:22 2001

Hinn blessaði Anus á þessum lista er [-=NeF=-]SnoZ nokkur, nýkrýndur Lan-setursmótsmeistari í Counter-strike. Hann átti víst að vera að haxa á fortress.is serverunum kl 8 á aðfangadegi, sem er ekki satt. Samt hans ip tala og hans wonid.

sup 212.30.195.26 486118 Wed Jan 2 04:32:39 2002

sup er MurK'Zero, einnig þekktur sem MurK-whut, MurK-vision, dr. goggz og goggi labbakútur. Einn besti Q3-spilari á íslandi, sem og mjög fær CS-spilari í stærsta klani íslands. Hann átti víst að vera að haxa á fortress.is serverunum 2. Jan 2002. Hans ip, hans wonid.

Já, Murk Love og Nef svindlarar hægri og vinstri á Fortress serverunum. Eða hvað? Satt að segja held ég að þetta sé bara bull software sem þeir eru með, og þessi listi eitthvað það mesta skítkast og rógburður sem að sögur fara af. Og ef Fortress.is má koma á huga korkana og segja að ég svindli án þess að hafa mikið til síns máls, þá held ég að ég megi koma hingað og segja á móti, Fortress.is vita ekkert hvað þeir eru að gera.

Fortress.is hefur tvo valkosti í mínum augum. Sá fyrsti er að halda því til streytu að love murk og nef séu eintómir svindlarar, hinn kosturinn er að veita þessum spilurum formlega afsökunarbeiðni á þessum bull lista.

Ég vill líka vekja athygli á því að þó ég hafi ekki verið að svindla á fortress, þá hef ég verið ágætlega duglegur við að reporta svindlara sem að koma á fortress. Það gerist ekki oft, en þegar ég og aðrir á server verðum varir við þá(og þá er ég ekki að tala um hin frábæru svindlvarnarforrit ykkar sem að gera aldrei neitt gagn), þá fer ég og næ í einhvern með rcon á fortress til að sjá, dæma, og veita svo viðeigandi refsingu. Kannski finnst ykkur gaman að saka þá um svindl sem eru að berjast við að halda svindlurum af serverunum ykkar, en mér finnst ekki gaman að verða fyrir barðinu á því. Og ég held að sömu sögu sé að segja um Snoz og Zero, þó þeir hafi verið undir altnicki. Satt að segja væri ég ekki hissa ef fleiri leyndust á listanum undir altnicki, enda finnst manni eins og þetta sé bara tekið af handahófi úr spilaraflóru fortress.is.

Ég vona bara að fortress sjái sér kleyft að hætta svona ásökunum og reyna að gera eitthvað í málunum á gáfulegan hátt, því svindlvarnarmálum þar á bæ er ekki vel farið þessa stundina.

Fyrir hönd snoz zero og pikachu,
[.Love.]Pikachu
sxqwsqwsqwsqwsqw