Komi allir sælir það er nú þannig mál með vexti að eg hef fengið mig fullsaddan af þessum kjafti og skitkasti a serverum simans.Ég var ad spila á 32 manna servernum þann 7 janúar milli 19:00 og 20:00 og þá var þar einstaklingur sem kalladi sig Th3 Tig3r og byrjaði hann að kalla mig illum nofnum svo sem fatlaðan og þroskaheftan aumingja og camphoruhelvíti sem mér er svo sem sama um,en þetta er bara ekki server til að koma inn á og drulla yfir fólk.Ég er 35 ára og hef spilað þetta í 2 mánuði og bæði hjá símanum og á útlendum serverum og það verður að segjast eins og er að svona sést ekki á útlendu serverunum.Það er lika ferlegt þegar útlendingar koma á íslenska servera að þá er alltaf einhverjir einstaklingar sem eru að skíkastast við þá þó svo að þeir séu mjög kurteisir og í alla staði gott að umgangast þá.Þá er að koma að kjarna málsins,eg hef mjög gaman af því að vera með langdræga riffla.Það er mitt áhugamál í þessum leik að taka menn á löngu færi og helst að gera þeim frekar bilt við sem á eftir koma.Ég er yfirleitt i CT og þá eru flest borðin þannig að terrar eiga að sækja og ct að verja og koma í veg fyrir að terr planti sprengjunni.Þá get eg ekki séð annað en ég sé að sinna minni skyldu að passa annað hvort sprengjusvæðið og hef ég alloft komið í veg fyrir að terrar planti sprengjunni.Einnig er það skilningur minn að þegar ég eða samherji fellum mannin með sprengjuna þá eigi sá er það gerir að passa að enginn annar pikki hana upp,en það vill brenna við að menn bara halda áfram og rusha en á meðan læðist einhver terrin að og pikkar upp sprengjuna og plantar svo meðan allir ct gaurar eru að elltast við terra i turni eða á þeirra spawni að fella spawncampara.Eg er kannski í eldri kantinum en á utlensku serverunum eru iðulega menn a mínum aldri og jafnvel eldri þetta er mér aðeins skemmtun og dægrastytting og ef að ég má ekki stunda þetta með minni tactik þá hætti ég að spila á íslenskum serverum en menn skulu muna að þetta eru svotil óritskoðaðir serverar hérna hjá okkur og það þarf ekki marga svona svarta sauði til að það breytist.Ég vona svo sannarlega að þeir sem þarna ráði taki það til athugunnar að menn geti skifst á skoðunum þarna en þá á málefnalegum nótum en ekki með skitkasti og böggi.Mér hefur aldrey sárnað að vera kallaður camper en get bara stundum brosað að því og hlegið með sjálfum mér.Flestir og meirihlutinn á ísleskum serverum er að gera mjög skemmtilega hluti og þar er oft skemmtileg umræða í gangi en ég vill bara með þessari grein koma á framfæri að þessi skemmdu eppli eru að eyðileggja allan epplakassan.Það getur verið að stundum tefji ég borð en yfirleitt er ég fljótt dauður og því ætti það ekkert að koma niður á leiktíma þessi tactik hjá mér, og er ég viss um að þeir sem eru mest að rofla eru bara að hugsa um sín frögg en ekki sigur síns liðs.Þetta er nefnilega liðaleikur og til að liðin vinni þurfa ekki allir að drepast heldur bara að sprengja eða að koma í veg fyrir það því við fáum stig og peninga fyrir það.Að fragga mikið er gaman en sigurinn er aðalatriðið og hef ég oft orðið hissa að sja superfraggara hlaupa framhja sprengjusvæði sem er autt með sprengjuna á bakinu og halda í humátt inná annað sprengisvæði sem er vél gætt og er svo felldur þar og þá er hann búinn að minnka líkur á sigri síns liðs um 50 til 70% og er þetta eingöngu gert til að fá sem flest frögg persónulega en ekki verið að hugsa um liðsheildina.Þá má koma á framfæri þeirri skoðun minni að setja upp einskonar system eins og er á irc að þegar menn eru að skammast og rífast þá sé hægt að kicka þeim ef að orðaforðinn fer á lægra planið.með von um birtingu og kveðjum til allra prúðra spilara því mér finnst að það sé þörf á umræðu um framkomu og hegðun sumra manna.Það að vera með svindlara er skárra en sífellt skítkast því að svindlarann leiðir maður bara hjá sér og þá hættir hann því enginn tekur eftir honum en sá sem alltaf er að bögga hann áreytir menn og skerðir leikgleði og ró manna og það truflar virkilega.Gleðilegt CT ár og þökk fyrir það gamla
ArticFalk