Sæl öllsömul.

Ég og nokkrir aðrir Simnet rconar höfum ákveðið að stofna nýja og sjóðheita scrimrás sem ber heitið #pcw. Pcw stendur fyrir practice clan war og er þessi rás risastór á ircserverum eins og Quakenet og því datt okkur í hug að stofna eina á Ircnet.

Núna hugsa örugglega margir “afhverju að stofna aðra scrimrás?” Jú svarið við þeirri spurningu er einföld. Við erum ekki ánægðir með stjórnun hinnar rásarinnar og við vildum koma af stað nýrri og ferkari rás með ný markmið.

Það sem er nýtt við þessa rás er að við ætlum að skella upp svokölluðum relay client sem mun vera á #pcw rásinni á Quakenet og mun þar afla inn match upplýsingum þaðan og það eins sem þú þarft að gera er að fara á #pcw rásina okkar á Ircnet og þá geturu leitað af skrimmum og fundið erlend skrim þar. Þetta hljómar kannski flókið en þetta er mun einfaldara en að fara á anna ircserver og leita af skrimmum þar.

Svo verða eflaust skemmtilegar keppnir þar eins og uptime keppni og fleira, þessvegna score-bottar og fleira.

Allavega þá hvet ég flesta til að nýta sér þessa glæsilegu rás þar sem þursaskapur er ekki þekktur og gleði og hamingja ræður ríkjum, gefum skít í samkeppnina og veljum gæði!

Sjáumst á #pcw :D.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius