Hæ hottintottar!

Hvað er með þetta DoD dæmi? Með fullri virðingu, þetta er örugglega voða gaman og allt það en af hverju þarf að vera að klína þessu saman við cs? Þetta er ekkert annað en aðför. Hér á Huga þar sem menn eru í gúddí fílíng að ræða cs laumast þetta fyrirbæri bakdyramegin inn.

Hevídúdí flöskuháls er í birtingu skoðanakannana einsog fram hefur komið, (hvers niðurstaða sumir bíða með mikilli eftirvæntingu). Og hvað er ekki verið að kanna? Jú: Finnst þér vanta DoD áhugamál hér á Huga? Verður DoD vinsælli í framtíðinni? Á að setja server limit á classana fyrir hvert lið í DOD þegar verið er að scrimma? (Give me a break.) Spilar þú Day of Defeat? Ef já hvað ertu gamall/gömul? Hvað er besta DoD borðið? Og aftur: Hvað er besta DoD borðið. Halló Hafnarfjörður! Hefur einhver áhuga á þessu?

Og einsog þetta sé ekki nóg? En, nei… Við í GGRN tökum undir með klanhórunum Azazel og Demoni (í hvaða klönum eru þeir annars þessa dagana?) að gagnabankinn iFrags sé hið merkasta fyrirbæri (sjá [GGRN]Fréttir á ggrn.org). Við sem sagt leggjum mikið uppúr iFragsinu öfugt við ýmsa aðra sem þykjast vita betur. En jafnvel iFragsið fær ekki að vera í friði fyrir þessu DoD-dæmi. Mér krossbrá þegar ég sá eitthvert klan sem kallar sig [.tSe.] (hvurskonar súrkálsnafn er nú tSe?) með 2.0968 í killrate og annað klan [.Abeo.] er með eitthvað ámóta? Maður spurði sjálfan sig í forundran: Hvaða voða Spazarar eru þarna saman komnir? Og maður fór að skoða þetta aðeins betur og þá er einhver [.tSe.]ownerKnifah með 76 dráp á 19 mín! En af því að ég er nú ekkert fífl þá komst ég að því að þarna er um þetta DoD að ræða. Hvað kemur þetta cs við?

Því spyr ég:

1. Er ekki hægt að losna við þessa óværu með einhverjum hætti?

2. Væri ekki hægt að spyrða þetta við Quake eða Wolfenstein eða eitthvað ámóta ómerkilegt svo að þetta sé ekki að þvælast fyrir almennilegu fólki?

3. Nú, og ef þetta er svona voðalega merkilegt, væri þá ekki hægt að vera með þetta á einhverjum sérstökum bási?

Með súrum kveðjum,

[GGRN]Rooste