Sæl öll.

Ég og Egill eth höfum nú verið að vinna að Netdeildinni hörðum höndum. Fyrir þá sem vita ekki hvað Netdeild Símans þá er þetta online CS 1,6 mót sem að Síminn hélt í gamla daga en hefur verið óvirkt síðan að ég held Yngvi Fixer hélt því uppi á sínum tíma.

Til að byrja með ætlum við einungis að hafa þetta invite mót fyrir 12 lið sem við höfum valið. Það má kalla þetta tilraunamót ef svo má að orði komast og ef þetta gengur vel þá verður næsta mót opið fyrir alla.

Leikjafyrirkomulagið er einfalt, það verða 2x 6 liða riðlar og aðeins 4 lið komast upp í útslástarkeppni (sem skiptast í lower og winnersbrackets eftir fyrstu umferðina eftir riðlana).

Þau lið sem fá invite í þetta mót eru eftirfarandi:

Catalyst Gaming
Celphtitled
Dropit
Geared Up
Got0wned
Ha$te
New Tactics
Ninth
Oasis
Overdoze
RU Gaming
SharpWires


Við viljum benda þessum liðum á að hafa samband annaðhvort við mig eða Egil. Þið getið sent mail á netdeild@simnet.is eða komið á ircrásina okkar #Netdeildin.

Reglur koma innan skamms á heimasíðuna http://simnet.is/netdeild.

Endilega takið þátt og hafið gaman. Ég vil benda liðunum sem ekki voru valin að örvænta ekki því eins og ég segi þá er þetta tilraunamót og verður annað opið mót um leið og þessu líkur.

Hver veit, kannski er einhver ladder eða clan rankings listi á leiðinni.

Stay tunes og endilega kíkið á #Netdeildin @ ircnet.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius