RCON leitin mikla! Ég vil byrja á að þakka öllum þeim sem sendu inn umsókn kærlega fyrir. Þessar þrjár vikur hafa borist inn rúmlega 100 umsóknir sem er alveg slatti en því miður geta ekki allir orðið rconar.

Ég er því búinn að fækka umsóknunum niður í 35 talsins. 22 í CS og 13 í CS:S.

Annað kvöld þann 27.jan munu svo Fleimur, BMP, eth og links kjósa ásamt mér um nýja rcona á Simnet serverana.

Kosningin mun hefjast á slaginu 8 (20:00) og mun eiga sér stað á shoutboxinu á eSports.is (hér er linkur á það).

Endilega að fjölmenna á þetta og hafa gaman af þessu því jú það er aldrei að vita nema þú verðir nýr rcon á Simnet serverunum.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius