Esports UnderGround @ Half-life.is á andante ! Sælir Hugarar

Árið 2007 líður senn í aldanna skaut. Að baki er eftirminnilegt ár fyrir margra spilara í hl menningunni og ég þakka fyrir gamalt og gott. Það er alltaf gaman að kíkja hér inn á Huga og sjá hve mikill metnaður er hjá mörgum einstaklingum að gera okkar litla samfélag áhugavert og skemmtilegt.

Ég hef tekið mér frí í meira en hálft ár frá allri spilamennsku og er rétt byrjaður aftur :)

Þeir sem vilja fylgjast með ruglinu hjá mér á Half-life.is og E-sports síðunni UnderGround eru ávallt velkomin :) annars tek ég þetta á léttu andante :)

Nú ef einhver hefur áhuga á að skrifa fréttir og/eða láta mig vita af einhverjum skemmtilegum viðburðum, þá endilega sendið mér Hugarskeyti eða á netfangið webmaster@half-life.is

www.half-life.is og er UnderGround vel merkt á forsíðunni.

Hafið það sem allra best yfir áramótin og gangið hægt um gleðinnar dyr :)

Kv.
Chef