Tekið af www.truflad.net Dr3dinn©2007


Jæja kominn tími að einhver brjóti niður þessa þögn um top10 klönin á Íslandi og ekki verra að hann viti eitthvað í kollinum þá að sjálfsögðu bíð ég (Dr3dinn) mig fram og mun ekki hika við að segja frá liðum, veikleikum, og styrkleikum!

Hér ætla ég að taka lið eftir hversu sterk þau eru, bæði hvað varðar mannskap, active-ness, styrkleika hvað varðar getu.

Endilega commentið eins og þið getið, fleimið, lesið grátið sem sumir munu ef til vill gera.
En ég mun ekki taka neitt út eða breyta neinu (fyrir utan málfari), hvað sem ykkar skrítnu,skítnu,skondnu skoðanir hafa að segja :)
3 klukkutímaverk yfir sterkustu liðin og leikmenn þeirra, góða skemmtun!


1. Sæti : RWS - Running With Scissors

Þessir guttar hafa sýnt sig og sannað á Íslandi og eru lang active-asta lið á landinu og eiga einn sterkasta leikmannahópinn sem stendur (miðað við active).

Unnu þeir HRinginn og hafa verið að gera það mjög gott á lanmótum hérlendis og væri verið að gera lítið úr þeirra eina sanna styrk ef þeir væru settir eitthvað neðar en í fyrsta sæti.

Hafa þeir hugsanlega ekki fengið að sýna sinn sanna styrk en eins og staðan er á Íslandi í dag er engin sem ógnar þeim með þessum stöðugu spilamennsku þeirra.

Hvað varðar line-upið þeirra og styrk mannanna þar, er hugsanlegt að Vargurinn sjálfur er þeirra sterkasti og lyklilmaður. En team-play hefur samt sem áður sett svip sinn á leik þessara spilara og virðist sem þeir séu eina pro liðið á Íslandi sem stendur.

Line-up

- vargur
- wilzon
- stebbz
- odinz
- kaztro
- finneh
- nadrium
- joejoe
-Weirdo


2. Sæti : Team - Seven - 7

Jæja þá er ekki hægt að taka af þessum spilurum að þeir eru með lang lang besta line-up af spilurum á landinu ef ekki allra tíma. En hvað varðar stöðuga spilamennsku og stabíla hittni getur maður því miður ekki gefið þeim meira en annað sætið því miður boys London counts for nothing :).

Þar sem þetta eru leifar af fornfrægum veldum Ice manna, Drake manna, Noname manna sem eitt sinn höfðu herðar yfir aðra hérna á Íslandi, er allt óvirðing gegn þeim annað en að setja þá í top5 á Íslandi.

Því ekki þyrftu þessir fleygu kappar mikla æfingu til að verða það sem áður var… langbesta lið á Íslandi…..

Line-up:

-Levi
-Spike
-zombie
-Wardrake
-Romim
-Blibb
-Deluxs
-Nequit
-Muggz
-aAron
-Calculon
-Links
-Skaven
-Cyrus
-xtreamer (flamez)


Er þetta eitthvað af því sem ég mann sem stendur en get ég sagt það og yfirgnæft allar vælandi raddir… þetta eru/voru lang bestu spilarar landsins, svo ekki sé annað sagt og Wardrake,Blibb,Zombie,Spike menn sem eru/voru taldir gríðarlega sterkir á alþjóðlegum mælikvörðum.


3. Sæti : Celph

Liðið sem hefur gengið gegnur ófáar blóðtökur seinustu mánuðina (kaztro t.d.)

Samt sem áður hefur liðið ekki tekist að halda sér stöðugt active, þrátt fyrir endurnýjaðann mannskap úr fyrrum röðum exile, og endurkomu Zyth sem cs-heimurinn bíður spenntur eftir
að sjá hvernig drengurinn lífgar upp okkar köldu tilveru á klakanum.

Er þetta lið eins umdeilt og það er misjafnt, hefur liðið gengið gegnum ófá online mót og staðið sig með prýði og verið í hörku baráttu á lanmótum innanlands.

Line-up:

-Fearless
-Zyth
-Conker
-Detinate
-Entex
-Elf

Erum þarna menn með töluverða reynslu og þyrfti ekki mikið að gerast innan þessara herbúða til að valda óreiðu á listanum sem ég er að reyna búa til.


Restin af top 10 listanum er birtur á www.truflad.net og mun ei vera birtur hér, vonast til að stjórendur samþykki efnið sem kemur á www.truflad.net og gefi okkur hugsanlega aðgang á esports kubbinn hérna á hugi.is/hl aðeins til að lífga upp á tilveruna hérna í cs-samfélaginu.

Gleðileg jól and fleim away !