Jæja gott fólk… það er að nálgast síðasta greiðsludag fyrir Skjálfta 4 | 2000.

Til að eiga tryggðan miða á Skjálfta 4 | 2000 þarf að vera búið að greiða fyrir mánudaginn 16. okt, en síðasti dagur fyrir greiðslu með reiðufé/debetkorti er á morgun föstudaginn 13, okt (hægt er að borga með kreditkorti yfir helgina með símgreiðslu).

Hægt er að greiða fyrir Skjálfta í Ármúla 25, eða útibúum Landssímans (en þau eru á nokkuð mörgum stöðum auk Reykavikur eða á Akranesi, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Sauðárkróki og Selfossi (og kannski fleiri stöðum sem ég veit ekki af :)), en einnig er hægt að greiða með kredit korti í síma 800-7575 (gjaldfrjálst númer).

Ég vil hvetja alla til að greiða sína miða sem fyrst, þar sem fólk á biðlista getur keypt ósótta miða eftir helgi.

Allir þeim sem skráðu rétt netfang hafa fengið sent bréf um þessa greiðslutilhögun og ætti hún því ekki að koma á óvart.

fyrir hönda Skjálftap1mpa,
Bandi