Sæl veriði ágætu /hl lesendur fjær og nær.

Ég frétti að hann Skidder hefði endurlífgað Cheat-Scannið vinsæla enn og aftur svo ég ákvað að það væri alveg tilvalið að troða mér í það.

Að þessu sinni er þetta aðeins öðruvísi því núna erum við komnir með okkar eigin rás, okkar eigin botta og okkar eigin forrit til að stjórna þessu öllusaman. Rásin okkar er bæði á IrcNet og QuakeNet en þó einungis hægt að scanna á QuakeNet. Það er þó ekkert flókið að connecta við QuakeNet en vera áfram á IrcNet. Til að gera það skrifaru bara /connect -m irc.quakenet.org, þá kemur upp annar status gluggi með rásum og því rugli. Næst skrifarðu bara /join #cheat-scanner.is og wuallah, þú ert kominn á rásina okkar.

Endilega kíkið á okkur bæði á IrcNet og QuakeNet til að bara spjalla eða til að láta scanna ykkur, ég býst við að öll online mót muni nota þetta svo nú þýðir ekkert að vera að svindla lengur.

Til að svara nokkrum auðspurðum spurningum læt ég smá FAQ fylgja:

1. Ef við finnum svindl hjá þér verðuru bannaður á serverunum okkar. (Simnet, BTNet, OGgZ og Oldies)
2. Við munum ekki segja þér HVAÐ né HVAR við finnum svindl. (Þetta er gert svo ekki sé hægt að vinna gegn scannanum)
3. Forritið scannar alla tölvuna þína en lætur okkur bara fá upplýsingar um svindl eða grunuð svindl. (Okkur er sama um persónulegu skjölin þín)
4. Ef þú neitar að fara í scann (eða bara ferð í burtu) verðuru bannaður fyrir þær ástæður. (þetta er mjög bein regla en auðvitað neyðum við engann í scan)
5. Við athugum hvort þú SÉRT MEÐ svindl, ekki hvort þú NOTIR þau.
6. Um leið og þú opnar scannann gefur þú okkur leyfi til að birta nafnið/nickið þitt á heimasíðu okkar (hvort sem þú sért clean eða ekki (við erum þó ekki með heimasíðu í augnablikinu)
7. Þú getur lesið meira um scannann hérna á ensku: http://www.cheat-scanner.co.uk/faq.php

Vonandi tekur fólk vel í þetta.

Ástarkveðjur,
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius