Sæl veriði.

Ég ætla að byrja á að nefna að ég hef lítið sem ekkert sofið í tvo sólahringa svo ég sló til að skrifa eina frábæra grein þar sem ég á það til að vera ótrúlega málefnalegur og menningarlegur þegar ég er í “svafngalsa” sem er þó bara á byrjunarstigi.

Nú það sem ég vil koma fram í þessari grein er þessi svakalega óvirðing sem virðist dynja yfir mína samstarfsmenn sem og mig sjálfan sem ég botna ekkert í því við höfum ekkert breytt starfshætti okkar og höfum verið að sinna þessu eftir bestu getu.

Þegar óprútnir aðilar brjóta reglur þá fá þeir að sjálfsöðu bann, hvort sem það er hér, á irc eða í CS, þetta er allt rekið af sömu aðilunum svo það skiptir engu máli. Að sjálfsögðu þá fáum við (ég allavega) daglega msg á irc eða á huga sem hljóma einhvernmegin svona: “Fyrirgefðu vinur en afhverju fékk ég bann”… Nú hugsa sumir, bíddu vá þetta er nú ekkert slæmt en svo þegar ástæðan fyrir banninu er komin í ljós þá breytast þessar ljúfu sálir í hulk og hljóma þá einhvernmegin svona: “FOKKING DJÖFULSINS TUSSU ADMINA ÓGEÐ, ÉG GERÐI EKKI NEITT DJÖFULL HATA ÉG ÞIG VIÐBJÓÐSLEGA FÍFL!!1ONE”. Nú það er þessi hegðun sem ég get já svona sagt að ég fái daglega.

Auðvitað geta samstarfsaðilar mínir misst stjórn á sér, heck, ég get þessvegna misst stjórn á mér en þegar það gerist þá er auðvitað bara beðið afsökunar á þeirri hegðun og lífið heldur áfram. Aftur á móti þau mál sem hafa gengið í gegnum þetta samfélag okkar eins og sinueldur eru bara fáránleg! Hver haldiði eiginlega að þið séuð?

Ég er allavega kominn með nóg af þessu kjaftæði og þeir sem eiga eitthvað í hlut skulu bara gjöra svo vel og haga sér annars eru þeir einstaklingar ekki hæfir til að vera með okkur hinum, það er bara einfalt.

Þessvegna hef ég ákveðið að sá sem kemur með enn einn tuð þráðinn fær bara einfaldlega bann hér á huga í óákveðinn tíma.

Einnig hef ég ákveðið að taka þá einstaklinga tengda þessum málum úr banni gegn því að ég vil ekki heyra MÚKK um eitthvað kjaftæði frá þeim aftur, _ALDREI_. Nú ef það gerist þá enda þeir í sömu sporum og þeir voru.

Þetta er once in a lifetime tækifæri og ef þið svo mikið sem hnerrið framan í mig eða mína samstarfsmenn þá endi þið í sömu sporum og þið eruð í núna þannig plís ekki láta mig þurfa að fara í þetta vesen aftur.

Ég bara þakka kærlega fyrir mig og vona að þau lið sem eiga í hlut hugsi sinn gang og komi þessum skilaboðum til sinna manna.
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius