Ég vildi bara senda þessa grein því ný og ný clön eru alltaf að sundrast og detta niður og súrt að sjá það.

Ég og 3 bestu vinir mínir stofnuðum lið sem kallaði sig DCAP og vorum bara að dunda okkur á módemum fyrst í gúddífíling. Síðan fórum við á cs mót í byrjun ársins fyrir 2 árum minnir mig og gekk bara allt í lagi 5 sæti en þá var cs menningin audda miklu minni.

Á þessu móti voru örfá lið sem eru enþá á lífi í cs menningunni en það er DCAP/ira= ccp, Love, Tval, Þessi lið eru enn eftir og hafa líklegast verið sterkust í cs á landinu svona ef litið er a allan cs tíman. Málið er bara að ástæðan fyrir því að þessi lið eru orðinn góð í cs er reynsla þeyrra í leikjum og að spila með sömu mönnunum alltaf og skapa þannig góðan moral í leik og vita hvaða menn eru færir um að gera. Einnig verða mennirnir bara góðir vinir eftir að hafa spilað saman í 2 ár í sama leiknum og þar deilt mörgu, rifist, planað og hlegið að misförum annara =].

Málið er bara að núna í cs þá kemur oftast 1 einstaklingur stofnar clan, recruitar hæstu ifrags gauranna, Verða ágætir single, síðan koma stóru klönin oftast og ræna bestu gaurnum þeirra eða hann sækir um þeir testa hann og samþykkja hann. Mórallinn i liðinu fer í skít þeir fara kanski fúlir á skjalfta og gengur ekkert allt of vel hætta síðan og gera nýtt clan. Þetta er einmitt sem á ekki að gerast, ég hvet ykkur liðin sem eru að byrja að fá bara góða vini saman sem svíkja ekkert lið ykkar og síðan recruita. Æfið ykkur saman farið saman á bc og scrimmið á miljón og hvað sem þið gerið ekki hætta í liðinu og stofna nýtt clan eða joina stóru clönin.

Öll þessi stóru lið sem eru uppi núna eru flestir góðir vinir svo best sem ég veit. Td við í ccp þekkjumst mjög vel allir og förum í bío og svona shit saman. Love þekkjast flesstir mj0g vel enda spila þeir flestir saman uppi á leigðu húsnæði, Hate sem eru reyndar hættir núna voru kanski eina clanið sem var ekki byggt á góðri vináttu og gekk þeim mj0g vel enda voru þeir allir frábærir spilarar.

Það sem ég er bara að reyna að segja er að byggið upp 1 stórt clan og haldið því.

ccp|DeathHunte