Almennar reglur mótsins:

1. Reglur þessar eru aðeins bundnar Kísildalur Official Lanmóti
2. Allir leikmenn mótsins eru bundnir af þessum reglum, sá sem brýtur eftirfarandi reglur getur verið rekinn út af mótinu og jafnvel fengið bann á önnur mót
3. Ef stjórnandi/p1mp biður þig um að gera eitthvað þá hlíðiru
4. Öll svindl eru bönnuð á mótinu (alveg sama hvort þú sért að keppa eða ekki), þá erum við að tala um öll þau forrit sem hafa áhrif á kóða leiksins og breyta honum
5. Allir leikmenn skulu bera virðingu og sýna kurteisi þegar samskipti eru átt við aðra leikmenn eða stjórnendur.
6. Sí endurteknar ásakanir um svindlnotkun er bönnuð án sannana. Ef sönnun er til staðar skal stjórnandi meta hvort um svindl hafi átt sér stað
7. Allar þessar reglur gilda um alla leikmenn mótsins, alveg ótengt hvaða leikur sé spilaður
8. Ákvarðanir stjórnenda eru endanlegar, ef viðkomandi hefur eitthvað út á það að setja getur hann talað við yfirstjórnendur
9. Kísildalur, Vodafone, Egilshöll, stjórnendur eða aðrir sem koma að mótinu taka enga ábyrgð á skaða sem kann að hljótast af þáttöku mótsins, tilfiningalegum, fjárhagslegum eða öðrum.
10. ÖLL meðferð áfengis er stranglega bönnuð á lóð Egilshallarinnar
11. Reykingar eru bannaðar innanhús
12. Fólk skal ganga snyrtilega um svæðið, henda rusli í ruslafötur og svo framvegis
13. Egilshöllinn sér um heitann mat eins og pizzur og hamborgara og er því ekki leyfilegt að koma með mat frá öðrum fyrirtækjum inn í salinn
14. reglur þessar geta breyst fyrirvaralaust

Leikreglur:

1. Heimalið byrjar alltaf sem CT
2. Configar verða skoðaðir fyrir hvern leik
3. Einungin CPL GUI3 eða sambærilegur config er leyfilegur
4. Einungis er leyfilegt að spila með 32bit
5. Leikmenn skulu spila undir þeim nickum sem þeir skráðu
6. Bannað er að nýta sér eftirfarandi exploit í möppum: Flassa undir kassana í lobby í de_dust2, flassa undir kassana á ramp í de_nuke, flasha undir vegginn hjá long í de_train, bannað er að fara bakvið kassann í íþróttarhúsi í de_nuke
7. Stranglega bannað er að silent planta
8. Duck jump (ballerína) er ekki leyft á þessu móti, ef leikmaður hagnast af slíku verki eru dregin 4 round af liðinu hans
9. Bannað er að nota skjöld
10. 3rd-party forrit sem breyta kóða leiksins eru stranglega bönnuð (wallhack, speedhack, aimbot og annar svipaður búnaður) og verður leikmaður rekinn af mótinu án endurgjalds ef eftirfarandi hlutir finnast í tölvu viðkomandi
11. Stjórnandi hefur leyfi til að skoða búnað hjá viðkomandi leikmanni hvenar sem honum hentar, ef leikmaður neitar þá er honum vísað af keppnisstað án endurgjalds
12. Reglur þessar geta breyst fyrirvaralaust

Checklisti fyrir LAN:

1. Nauðsynlegt er fyrir aðila sem ætlar að taka þátt í lani komi með tölvu að heiman eða fái lánaða vél af vinnustað sýnum, einnig væri ráðlagt að koma með skjá
2. Nayðsynlegt er að koma með snúrur eins og powersnúru fyrir skjá og tölvu, LANsnúru (5m+) og svo fjöltengi
3. Nauðsynlegt er að koma með lyklaborð, mús, músarmottu og headset
4. Ráðlagt er að taka með sér alla lausa hluti ef aðili fer heim af mótinu útaf einhverjum aðstæðum (sofa eða eitthvað svoleiðis), einnig væri gott að setja hengilás á tölvuna ef svoleiðis er fyrir hendi annars er hægt að vera ráðagóður og búa til lás á tölvuna sjálfur
5. Nauðsynlegt er að koma með 3500kr. til að borga inn á lanið og fyrir alla 16 ára og yngri að koma með útivistarleyfisblað sem við sköffum undirritað af foreldri eða forráðamanni

ATH Leyfisbréf á LAN mótið mér finna hér og er mjög mikilvægt fyrir alla 16ára og yngri að prenta það út og koma með það á mótið!
http://lanmot.hax.is/leyfisbref.html
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius