Hér hefur verið umræða um ný klön og framkomu reyndra manna við ný klön. Margt í þessari umræðu hefur verið rétt og margt rangt.

Í framhaldi af því vil benda þeim á sem eru að stofna ný klön, að klan með gott/flott nafn er hærra í metum hjá mér og að ég held flestum.


Ég myndi aldrei stofna/ganga til liðs við clans sem kallar sig t.d. [DUDE], [ASNI], [MECCHA] og svo framvegis.. (no offence). Kanski er það bara snobb, en þannig er ég :).

Maður hugsar bara “OMG” þegar maður sér svona nöfn, það er bara eins og að hitta mann sem heitir “Ljótur”.


Clan nöfn eins og [HATE], [LOVE], [VON] og [evil] eru flott/gott og getur fólk t.d. miðað þig við þessi nöfn þegar það er að stofna klön. Ef það hefur ekki “sens and sensibility” á flottum/marktækum nöfnum.

Þetta er bara einskonar markaðssetning..

- Myndir þú treysta fyrirtæki sem heitir “Asna dude meccha corporation” ?

- Myndir þú kjósa mann sem heitir “Gaylord Fokker” fyrir forseta ?

- Myndir þú skýra barnið þitt Asni Dude Úlfljótson ?

Skilaboðin eru:

“Vandaðu nafna val á klani þínu eins og það sé barn þitt”

GG :)
Mortal men doomed to die!