Heil og sæl öllsömul.

Þessi grein mun eflaust kæta marga CS1.6 spilara en því miður þá er ég ekki nógu mikið inn í CS:S senunni til að hafa einhverjar fréttir þaðan.

Nú allavega þá vil ég þakka fyrir fjöldan allan af umsóknum sem ég fékk varðandi RCON réttindi og nú loks höfum ég og Konni/zlave valið úrslitahópinn sem mun gegna þessu starfi.

Þeir sem að voru valdir í þessi störf eru eftirfarandi:

Steini/Shanty (V|shanty á irc), Egill/eth (mreth á irc), Gísli/Ares (V|Ares á irc), Alfreð/Dr3dinn (V|Dr3dinn á irc), Gunnar/DogSter (DogSter á irc), Heimir/links (Adios\\links á irc) og Hallgrímur/fallen (diG|Fallen á irc). Þessi hópur hefur ekki fengið formleg völd enþá en það er verið að reyna að koma því í lag eins fljótt og auðið er. Allir þessir aðilar munu vera á #Counter-Strike.is til að hjálpa ykkur þannig endilega joinið og supportið okkur.

Eins og glöggir hafa kannski tekið eftir eru 3 VONarar í þessum hópi og vil ég taka það fram að það tengist klíkuskap engan vegin. Þeim sem að ég treysti og tel vera hæfasta í þetta starf voru valdir og hverjum geturu ekki treyst betur en liðsfélugum þínum.

Nú að allt öðrum efnum.

Núna rétt í þessu var hann Konni að tilkynna mér það að glænýjir Simnet Scrim serverar hafa litið dagsins ljós (Scrim7, Scrim8 og Scrim9). Vonandi munu þessir serverar dreyfa álaginu sem hefur verið á hina scrim serverana þessa dagana.

IP's:
scrim7 194.105.226.138:27015
scrim8 194.105.226.138:27025
scrim9 194.105.226.138:27035

Hvað segir maður þá? ;)
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius